Pallabíllinn er metalblár í ár

Lokahöndin lögð á RAV4 og bíllinn eins og nýr.
Lokahöndin lögð á RAV4 og bíllinn eins og nýr.

Fjöldi Toyota-eigenda kom á þjónustudag Toyota sem haldinn var sl. laugardag í 13. sinn. Þjónustuaðilar Toyota víða um land tóku á móti gestum, bíllinn var þveginn og boðið var upp á grillaðar pylsur, ís og sumarglaðning fyrir smáfólkið.

Alls voru tæplega 2.000 bílar þvegnir þennan dag og 4.500 pylsur voru grillaðar ofan í gestina. Ýmis skemmtiatriði voru í boði fyrir gestina og má þar nefna að Úlfur Úlfur skemmti gestum í Kauptúni ásamt Gretu Salóme og bræðrunum söngelsku, þeim Friðriki Dór og Jóni Jónssyni. Páll Óskar steig einnig á svið og fékk að því loknu nýjan Toyota Auris Hybrid afhentan að afhjúpun lokinni.

Að þessu sinni er „Pallabíllinn“ metalblár að lit og mun örugglega taka sig vel út í sólinni í sumar. 

Toyota Yaris þerraður að loknum þvotti, og glansandi hreinn fyrir …
Toyota Yaris þerraður að loknum þvotti, og glansandi hreinn fyrir bragðið.
Toyota-bílar af öllum gerðum voru teknir í þvott. Hér sjást …
Toyota-bílar af öllum gerðum voru teknir í þvott. Hér sjást Land Cruiser 120, Yaris og Avensis í röð.
Páll Óskar var umringdur aðdáendum og deildi glaður kastljósinu með …
Páll Óskar var umringdur aðdáendum og deildi glaður kastljósinu með stjörnu dagsins, hinum metalbláa Auris Hybrid.
Yngri sem eldri gestir þáðu hressingu á þjónustudeginum og vel …
Yngri sem eldri gestir þáðu hressingu á þjónustudeginum og vel á fimmta þúsund pylsur runnu ofan í viðstadda.
Toyota RAV4 fær hér rækilegan sápuþvott með svampi. Faglegra verður …
Toyota RAV4 fær hér rækilegan sápuþvott með svampi. Faglegra verður það vart.
Ís er ávallt vel þegin hressing og ungviðið hópaðist að …
Ís er ávallt vel þegin hressing og ungviðið hópaðist að ísbílnum.
Það stafar glimrandi glamúr af hinum nýja, metalbláa Auris Hybrid …
Það stafar glimrandi glamúr af hinum nýja, metalbláa Auris Hybrid sem Páll Óskar rúllar á í sumar.
Úlfur Úlfur tóku lagið og röppuðu af krafti eins og …
Úlfur Úlfur tóku lagið og röppuðu af krafti eins og þeirra er von og vísa.
Greta Salóme ásamt hinum tónelsku og ávallt geðþekku bræðrum úr …
Greta Salóme ásamt hinum tónelsku og ávallt geðþekku bræðrum úr Firðinum fagra, Friðrik Dór og Jón Jónsson.
mbl.is