Nýr Marco Polo frumsýndur

Mercedes-Benz Marco Polo.
Mercedes-Benz Marco Polo.

Nýr Mercedes-Benz Marco Polo verður frumsýndur næstkomandi laugardag, 20. maí,  hjá söludeild atvinnubíla hjá Öskju á Fosshálsi 1. Hann er ferðafélagi fyrir útileguna, næturgistingu og helgarfrí fjarri hversdagsins amstri.

Marco Polo er fáanlegur í þremur útfærslum; Marco Polo Activity, Marco Polo og Marco Polo Horizon. Marco Polo Activity og Horizon sameinar kosti fjölskyldu- og ferðabíls með einstaklega rúmgóðu farþegarými og gistiplássi fyrir allt að 5 manns.

Marco Polo er einnig fáanlegur útbúinn smáeldhúsi með tveimur gashellum, kæliskáp, vaski og margs konar geymsluhirslum. Í honum er felliborð þegar sest er að snæðingi innandyra en auk þess er hægt að fá tjaldborð og fellistóla þegar matast er úti undir beru lofti. Það er einnig innbyggður fataskápur í bílnum með fataslá, hillu og snyrtispegli. Aftursætunum er á einfaldan hátt breytt í þægilegt rúm og ef á þarf að halda er annað tvíbreytt rúm í upphækkanlega þakinu.

Bíllinn er með rafstýrðri „easy-up“ hækkun á þakinu sem er einföld í notkun og dregur hvergi úr sportlegu svipmóti þessa laglega ferðabíls. Meðal hátæknibúnaðar sem í boði er má nefna Garmin Map Pilot leiðsögukerfi og bílastæðakerfi með sjálfstýringu sem stýrir Marco Polo með minnstu fyrirhöfn inn í bílastæði. Meðal öryggisbúnaðar má nefna athyglisvarann Attention Assist sem heldur ökumanni við efnið meðan á akstri stendur. Marco Polo er í boði með sparneytnum, fjögurra strokka dísilvélum.

„Við erum afar spennt að frumsýna  Marco Polo. Hann er sannkallað heimili að heiman hvert sem ferðinni er heitið. Það er mikil eftirvænting eftir bílnum og nú þegar hafa nokkrir bílar verið seldir og það áður en bíllinn er frumsýndur hér á landi,“ segir Finnbogi Óskar Ómarsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Öskju.

mbl.is