Þreföld frumsýning hjá Íslensk-Bandaríska

Blásið var nýverið til stórrar sýningar á bílum frá Jeep, Dodge og Ram hjá bílaumboðinu Íslensk-Bandaríska í húsakynnum umboðsins við Þverholt 6 í Mosfellsbæ.

Jeppinn Jeep Grand Cherokee Laredo var sýndur og einnig Jeep Grand Cherokee í Overland- og Summit-útfærslum. Einnig voru Jeep Renegade og Jeep Cherokee sýndir og boðið var upp á reynsluakstur.

Frá Dodge var Dodge Durango GT frumsýndur, sem er stór sjö manna jeppi með 3,6 lítra 290 hestafla bensínvél með 8 þrepa sjálfskiptingu og fáanlegur í tveimur útfærslum, GT og GT Premium.

Þriðja frumsýningin var á Ram 3500 en hann er einn öflugasti pall-bíllinn á markaðnum með mikla tog-getu sem kemur frá hinni kunnu 6,7 lítra og 385 hestafla Cummins-dísilvél. Sýndir verða bílar í Laramie- og Limited-útfærslum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: