Kia Optima í tengiltvinnútgáfu

Nýr Kia Optima SW tengiltvinnbíllinn verður kynntur hér á landi …
Nýr Kia Optima SW tengiltvinnbíllinn verður kynntur hér á landi í september nk.

Kia hefur kynnt til leiks nýjan Optima Sportwagon í tengiltvinnútgáfu (Plug-in Hybrid). Í aflrásinni eru 68 kílówatta rafmótor og tveggja lítra GDI bensínvél.

Samanlagt skilar þessi útfærsla 205 hestöflum og 375 Nm í togi. Rafmótorinn skilar 49 hestöflum ef ekið er einungis á rafmagninu. Bíllinn er með 62 km drægi á rafmagninu einu við bestu hugsanlegu aðstæður. Er það með því lengsta sem þekkist í flokki tengiltvinnbíla, að því er segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur, að útblástur Kia Optima SW Plug-in Hybrid sé einungis 33 g/km sem sé  lægsta koltvísýringslosun í þessum stærðarflokki bíla. „Kia hefur lagt mikið í að ná fram sem bestum aksturseiginleikum í bílnum og góðum þægindum í akstrinum. Kia Optima SW Plug-in Hybrid er vel búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Kia.“

Nýr 8 tommu snertiskjár býður upp á tengimöguleika við Android Auto og Apple CarPlay. Bíllinn er rúmgóður fyrir farþega og farangursrýmið er alls 440 lítrar með aftursætin í uppréttri stöðu.

Bíllinn nýi verður kynntur í byrjun september hjá Bílaumboðinu Öskju.

mbl.is