Land Cruiser Black stjarnan

Hann heitir Land Cruiser Black þessi þótt hvítur sé.
Hann heitir Land Cruiser Black þessi þótt hvítur sé.

Fyrsta stórsýning haustsins hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Selfossi og Akureyri verður á morgun, laugardaginn 2. september, frá klukkan 12 til 16.

Á sýningunni má sjá allt það nýjasta frá Toyota en stjarna sýningarinnar verður glæsileg sérútgáfa af Land Cruiser - Land Cruiser 150 Black sem er búinn aukahlutapakka að verðmæti 728.000 kr. og fylgir hann bílnum án aukakostnaðar.

Með Land Cruiser 150 Black fylgja svartar felgur og GoodYear heilsársdekk, húddhlíf, toppgrindarbogar, krómlisti á afturhlera, krómstútur á púst, krómhlíf á spegla, hlíf á afturstuðara, hliðarlistar með krómi og gluggavindhlífar.

Land Cruiser tekur sig vel út með þessum aukabúnaði eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. „Sumir segja að Íslandsbíllinn hafi aldrei verið fallegri,“ segir í tilkynningu um sýningar þessar frá Toyota. 

mbl.is

Bloggað um fréttina