EQA frumsýndur í Frankfurt

Mercedes-Benz kynnir nýjan og spennandi hreinan rafbíl á bílasýningunni sem nú stendur yfir í Frankfurt. Bíllinn ber nafnið EQA og hlaut mikla athygli á sýningarsviðinu.

EQA er framúrstefnulegur í hönnun en hann er 5 dyra stallbakur. Hann er með tvo rafmótora sem framleiða samtals 200 kW af hreinu afli til hjólanna. Drægni bílsins er allt að 400 km við bestu aðstæður.

Mercedes-Benz kynnti vörumerkið EQ á bílasýningunni í París í fyrrahaust en það nær yfir alla rafbíla þýska lúxusbílaframleiðandans. Bíllinn mun koma á markað árið 2020 og verður þá annar bíllinn í röðinni af 10 hreinum rafbílum sem Mercedes-Benz mun kynna á næstu 5 árum.

EQA fylgir í fótspor fjórhjóladrifna sportjeppans Generation EQ sem kynntur var í París í fyrra og kemur á markað árið 2019. Plug-in Hybrid bílar Mercedes-Benz verða einnig framleiddir undir merkjum EQ en þeir eru búnir tengiltvinnvél, þ.e. bæði rafmótor og brunavél.

Mercedes-Benz hefur ákveðið að fjárfesta af miklum þunga í rafbílum og rafhlöðutækni. Þannig ætlar fyrirtækið að skapa innviði fyrir mikla þekkingu og tækni fyrir nýja rafbíla. Í byggingu er 55 milljarða króna risarafhlöðuverksmiðja Mercedes-Benz í Þýskalandi. Þá er unnið hörðum höndum að því að lækka verð á rafhlöðum enn frekar. Talið er að framleiðslukostnaðurinn á rafhlöðum verði innan tveggja ára aðeins 10% af því sem hann var árið 2012.

mbl.is