Hybrid-helgi hjá Toyota

Tvinnbílar verða í öndvegi hjá Toyota á morgun, laugardag.
Tvinnbílar verða í öndvegi hjá Toyota á morgun, laugardag.

Framundan er stór helgi hjá Toyota sem sýnir á morgun, laugardag, kl. 12 – 16 alla hybridlínuna hjá viðurkenndum söluaðilum í Kauptúni, Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi auk þess sem sýningin verður opina á sama tíma á sunnudag hjá Toyota Kauptúni og Akureyri.

„Vinsældir Hybridbíla fara vaxandi með hverju árinu enda eru þeir þekktir fyrir góða aksturseiginleika, sparneytni og snerpu og nú hafa yfir 10 milljón Hybridbíla frá Toyota og Lexus verið seldir. Á sýningunni verður hægt að gera góð kaup því sérstakt sýningartilboð verður á öllum Hybridbílum Toyota,“ segir í tilkynningu.

Sýndar verða hybridútfærslur af Yaris, Auris, C-HR og RAV4. Þá er ónefndur bíllinn sem hefur rutt brautina fyrir alla aðra hybridbíla frá því hann var fyrst kynntur fyrir um 20 árum, hinn eini sanni Prius.

Öllum Hybridbílum sem seldir verða á sýningunni fylgir Lenovo IdeaPad Yoga 520 að verðmæti 159.900 kr. Þetta er sannkölluð hybrid-tölva því hana má bæði nota sem spjaldtölvu og venjulega fartölvu.

mbl.is