SsangYong jeppasýning á morgun

Breyttur Rexton verður meðal annarra jeppa til sýnis í SsangYong …
Breyttur Rexton verður meðal annarra jeppa til sýnis í SsangYong salnum.

Veturinn er farinn að gera vart við sig og því ætlar Bílabúð Benna að slá upp jeppasýningu með fjórhjóladrifnu SsangYong hörkutólunum, Rexton, Korando og Tivoli á morgun laugardaginn 14.október.

Í tilkynningu kemur fram að nú séu SsangYong jepparnir komnir í vetrarbúning og Bílabúð Benna láti fylgja með þeim veglega kaupauka og tilboð.

Það innifelur að öllum SsangYong jeppum fylgi Toyo harðskelja vetrardekk og að hægt verði að fá 33 tommu breytingu á Rexton á tilboðsverði, aðeins 290 þúsund krónur.

Einn breyttur Rexton verður m.a. til sýnis í SsangYong salnum.

SsangYong jeppasýninguna, fer fram að Tangarhöfða 8 og stendur yfir frá klukkan 12 til 16.

mbl.is