Hafa afhent þúsund vistvæna bíla

Volkswagen e-Golf
Volkswagen e-Golf

Bílaumboðið Hekla afhenti á dögunum eittþúsundasta bílinn á árinu en aldrei fyrr hafa jafn margir vistvænir bílar frá umboðinu selst á jafn skömmum tíma.

Hekla er sem fyrr í fararbroddi á þessu sviði en 60% allra vistvænna bíla sem selst hafa á árinu koma frá Heklu, að því er fram kemur í tilkynningu.

Það sem af er árs hafa selst 381 Mitsubishi Outlander tengiltvinnbílar hjá Heklu. Þetta þýðir að rúmlega einn af hverjum fimm vistvænu bílum sem seldust á árinu er Outlander tengiltvinnbíllinn og hann er langvinsælasti vistvæni bílinn á Íslandi annað árið í röð.

Þar á eftir kemur Volkswagen Golf en Hekla hefur selt 208 vistvæna Golf á árinu. Umboðið hefur selt ellefu mismunandi tegundir af vistvænum bílum.

„Við erum mjög stolt af góðu gengi í sölu vistvænna bíla. Við leggjum mikinn metnað í þennan vöruflokk og raf-, metan- og tengiltvinnbílar fást í meira úrvali hjá Heklu en nokkru öðru umboði,“ segir María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. „Það er frábært að hafa selt þúsund vistvæna bíla á árinu og við stefnum á að gera enn betur á næsta ári.“

mbl.is