Ford Edge Vignale frumsýndur hjá Brimborg

Brimborg frumsýnir Ford Edge Vignale á laugardaginn kemur, 11. nóvember, milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6.

Vignale er ný lúxusútfærsla af hinum vinsæla Ford Edge jeppa, hlaðinn lúxusbúnaði. Glæsilegt handverk, einstakt val á efnum og hljóðlátt farþegarými tekur á móti þér í nýjum Ford Edge Vignale. Komdu og prófaðu Edge Vignale og þú sannfærist!

Sérstök útgáfa af Ford Edge

„Ford Edge Vignale býður uppá akstursupplifun sem er engri lík. Bíllinn er stútfullur af notendavænni tækni og innra rýmið umvefur þig lúxus. Edge Vignale sér um þetta fyrir þig, þú nýtur ferðarinnar. Háþróuð fjöðrun, sem eykur nákvæmni bílsins í akstri, kraftmikil 210 hestafla dísilvél og Ford PowerShift gírskiptingin sameinast með lágri eldsneytiseyðslu án þess þó að það komi niður á akstursánægju,“ segir í tilkynningu frá Brimborg.

Sérlega vel búinn

Staðalbúnaður Edge Vignale er ríkulegur en hann býr yfir Vignale útlistkitti, 20" Vignale álfelgum, stillanlegum LED aðalljósum, baksýnisspeglum með dimmingu, LED þokuljósum, Vignale lúxus leðuráklæði, leðurklæddu mælaborði, leðurklædd hurðarspjöld, framsæti með minni, Sony hljómtækjum, Vignale snertiskjá, Vignale innilýsingu, álútliti á langbogum, upphitanlegri framrúðu (þarft ekki að skafa), upphitanlegu stýri, hálfsjálfvirkri bílastæðaaðstoð og myndavél að framan og aftan með tvískiptum skjá í mælaborði og íslensku leiðsögukerfi. Öryggisbúnaðurinn er einnig mjög mikill og má þar nefna umferðaskiltalesara, veglínuskynjara, árekstrarvörn, veltivörn, upphitanleg framrúða með sólarvörn og regnskynjara, 7 öryggispúðar og þar á meðal fyrir hné ökumanns og svo mætti lengi telja.

Reynsluakstur í boði

Meðan á sýningunni stendur geta gestir og gangandi prófað nýjan Ford Edge Vignale. Að auki verður boðið uppá dýrindis kaffi frá Kaffitár og bollakökur frá Mosfellsbakarí.

 

mbl.is