500.000 krónur í afslátt

Verulegur afsláttur verður gefinn af Citroën C4 Cactus hjá Brimborg.
Verulegur afsláttur verður gefinn af Citroën C4 Cactus hjá Brimborg.

Citroën C4 Cactus verður með hálfrar milljónar króna afslætti á Svörtum föstudegi hjá Brimborg. Kostar sjálfskiptur Cactus kostar þá aðeins 2.490.000 krónur.

„Citroën C4 Cactus er með stórt skott, ótrúlega sparneytinn og ný undurþýð sjálfskipting gerir hverja ferð ótrúlega þægilega! C4 Cactus er einstaklega rúmgóður fyrir fjölskylduna, gönguvinina eða bíltúrinn,“ segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur, að hugmyndafræðin að baki Citroën C4 Cactus jafngildi byltingu í hönnun bíla. Ekkert prjál sé í honum, einungis hlutir sem skipta máli. Sé hönnunin einfaldlega hagnýt og djörf og verðið lágt. Bíllinn sé notadrjúgur.  Þá verji Airbump-hlífðarklæðningin bílinn fyrir minniháttar hnjaski í dagsins önn.

Opið lengur

Á föstudaginn kemur verður opið til kl. 19 í Reykjavík, Bíldshöfða 6, og á Akureyri, Tryggvabraut 5. Tilboðið gildir líka á laugardaginn 25. nóvember, en þá er opið klukkan 12-16.

mbl.is