Lagertiltekt hjá BL

Hyundai, Renault, Dacia, Subaru, Nissan, BMW og Jaguar eru á …
Hyundai, Renault, Dacia, Subaru, Nissan, BMW og Jaguar eru á útsölunni.

Nú stendur yfir tiltekt á lager nýrra bíla hjá BL þar sem valdir bílar hafa verið settir á rýmingarsölu.

Til 15. desember verða bílarnir seldir með allt að 500 þúsund króna afslætti auk þess sem 100 þúsund króna inneignarkort fylgir hverjum bíl sem kaupendur geta ráðstafað að eigin vild.

Bílar á tilboðstímanum eru af flestum þeim tegundum sem BL er með umboð fyrir, svo sem Hyundai, Renault, Dacia, Subaru, Nissan, BMW og Jaguar, allt eftir því hver lagerstaðan er á einstökum gerðum, að því er fram kemur í tilkyningu.

mbl.is