BL innkallar Nissan-bifreiðar

BL ehf. hefur innkallað Nissan-bifreiðar sem framleiddar voru á árabilinu 2001-2013. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúði leki með þeim afleiðingum að súrefni komist inn í hylki loftpúðans og hafi áhrif á virkni loftpúðans við árekstur þannig að agnir úr loftpúðanum gætu skaðað farþega.

Þetta kemur fram á vef Neytendstofu.

Um er að ræða undirtegundirnar Doble Cab, Almera, X-Trail, Terrano, Note og Patrol sem framleiddar voru á árunum 2004 til 2013

BL ehf mun senda eigendum viðkomandi bifreiða bréf þar sem boðun í loftpúðaskipti verða tilkynnt þeim að kostnaðarlausu, að því er segir á vef Neytendstofu.

Neytendastofa hvetur fólk til að fylgjast vel og hafa samband við BL ehf ef það á bíla sem falla undir þessa innköllun.

mbl.is