BMW hlaut fern Auto Trophy verðlaun

Lesendur þýska bílatímaritsins Auto Zeitung og nokkurra systurblaða og bílavefja í öðrum löndum kusu rafbílinn BMW i3, BMW 3 Series, BMW 5 Series og BMW X3 „bestu bíla heims“, hvern í sínum flokki.

Blaðið framkvæmir árlega lesendakönnun meðal áskrifenda sinna og hefur gert í sl. 30 ár. Auto Trophy-könnunin er ein sú þekktasta sem gerð er í bílaheiminum. Í heildarkeppninni varð BMW X3 20d hlutskarpastur, í öðru sæti Ford Mustang GT og í því þriðja Seat Arona 1,0 EcoTSI.

Í nýju könnuninni svöruðu lesendur og áskrifendur miðlanna svörum um bíla af 16 tegundum og í tveimur meginflokkum. BMW i3 bar sigur úr býtum í flokki rafmagnsbíla með atkvæðum 35,6% svarenda sem settu hann í 1. sæti. Bíllinn kom á markað fyrir fjórum árum og hefur hann verið sá mest seldi í sínum flokki í Þýskalandi frá upphafi.

Í flokki meðalstórra fólksbíla sigraði BMW 3 Series sem er einn mest seldi bíllinn í sínum flokki í Þýskalandi ásamt systurbíl sínum, BMW 3 Series Gran Turismo sem nýlega kom á markað. Tæp 18% svarenda settu 2 Series í 1. sæti. Þá settu rúm 26% svarenda nýja kynslóð BMW 5 Series Touring í 1. sæti þegar lesendur völdu „forstjórabíl ársins“ en 5 Series hefur áður vermt 1. sætið í þeim flokki, m.a. vegna framúrskarandi aksturseiginleika og afþreyigar- og tengimöguleika sem bíllinn býr yfir.

Að síðustu völdu lesendur Auto Zeitung þriðju og nýjustu kynslóð miðstærðarbílsins BMW X3 besta sport- og útvistarbílinn, en tæp 21% svarenda settu hann í 1. sæti í þeim flokki.

mbl.is