Nýr CLS kynntur til leiks

Hinn nýi Mercedes-Benz CLS.
Hinn nýi Mercedes-Benz CLS.

Nýr Mercedes-Benz CLS var frumsýndur á bílasýningunni í LA sem nú stendur yfir.

„Bílsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu eins og venjan er þegar nýr Mercedes-Benz er kynntur til sögunnar,“ segir í tilkynningu. Þetta er þriðja kynslóð CLS og hefur bíllinn alltaf vakið athygli fyrir fallega hönnun.

Grillið að framan er eins og alsett demöntum og ljáir bílnum svip. Ljósin að framan eru með nýrri hönnun og skarpari línum en áður og þá er einnig nýr hönnun á afturljósum bílsins. CLS er sem fyrr með coupe lagi þannig að þaklínan kemur hallandi niður sem gefur þessum stóra fjögurra dyra lúxusbíl sportlegt yfirbragð.

Innanrýmið hefur breyst talsvert og styðst allnokkuð við innréttingu hins nýja E-Class.  CLS býður upp á 64 mismunandi litatóna í innilýsingu. 12,3 tommu skjár sér um að veita ökumanni og farþegum alla tækni varðandi akstursupplýsingar og afþreyingu.

Nýr CLS kemur með nýjum vélarbúnaði bæði í dísil- og bensínútfærslum. Dísilvélarnar skila frá 286 til 340 hestöflum en aflmesta útfærslan er C 450 með þriggja lítra besnínvél. Sá bíll er aðeins 4,8 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. CLS í AMG útfærslu verður þó enn aflmeiri þegar hann kemur á akrað í byrjun nýs árs en hann verður með 450 hestafla bensínvél. CLS býður upp á enn meira pláss en áður bæði fyrir farþega og farangur. Farangursrýmið í CLS er stærra en áður og tekur nú 520 lítra.

Nýr CLS er búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Mercedes-Benz. Bíllinn er í boði með 4MATIC aldrifskerfinu. Myndavélar og radarvarar í kringum bílinn sjá til að gefa ökumanni mjög góða yfirsýn yfir nánasta umhverfi og umferð.

mbl.is