Kona „hagkvæmasti“ bíllinn

Fulltrúi Hyundai tekur við NAUVY viðurkenningu Kona í Detroit.
Fulltrúi Hyundai tekur við NAUVY viðurkenningu Kona í Detroit.

Borgarsportjeppinn Hyundai Kona og Hyundai EL hafa verið kjörnir „nytsömustu bílarnir“ í sínum flokki 2019 á mörkuðum Norður-Ameríku. Eru Kona og Kona El nú handhafar verðlaunanna „2019 North American Utility Vehicle of the Year“ (NAUVY) í Bandaríkjunum og Kanada.

Í tilkynningu segir að þetta sé í fyrsta sinn sem jepplingur frá Hyundai hlýtur verðlaunin sem árlega eru kynnt á bílasýningunni í Detroit sem er nýlokið.

„Að vonum urðu fulltrúar Hyundai glaðir þegar úrslitin voru kynnt og sagði Brian Smith, yfirmaður hjá Hyundai Motor America, að starfsmenn fyrirtækisins gætu ekki verið stoltari. „Kona er í senn á mjög viðráðanlegu verði, bíllinn endurspeglar flotta og nútímalega hönnun og er sérlega vel búinn tæknilega, hvort sem litið er til þæginda- eða öryggisbúnaðar,“ segir Smith.

Hyundai Kona er sérstaklega hannaður með þarfir þeirra í huga sem eru virkir í daglegu lífi, stunda útivist og íþróttir og vilja þægilegan bíl sem þjónar daglegum þörfum í leik og starfi, hvort sem er í borgarumferðinni eða á ferðalögum utan helstu alfararleiða.

„Segja má að Kona hafi fyllt í ákveðna og ónýtta markaðshillu og sem slíkur sett ný viðmið sem fallið hafa í góðan jarðveg. Bíllinn hefur hlotið fjölda verðlauna frá því að hann kom á markað fyrir hönnun, hagkvæmni, aksturseiginleika við mismunandi aðstæður og góða drægni rafdrifnu útgáfunnar svo eitthvað sé nefnt,“ segir í tilkynningunni framangreindu.

Dómnefnd NAUVY-verðlaunanna er skipuð 54 bílablaðamönnum og greiningaraðilum í Bandaríkjunum og Kanada. Verðlaunin hafa verið veitt árlega í aldarfjórðung eða frá árinu 1994.

mbl.is

Bloggað um fréttina