Flúðu upp á þak eftir að bílar festust

Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar á fjórða tímanum í dag eftir að tveir bílar festu sig í á við Flæður á Gæsavatnaleið, við norðanverðan Vatnajökul. Þrennt sat fast ofan á þökum bifreiðanna.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var óskað eftir aðstoð þyrlunnar vegna þess hversu erfitt það getur verið að komast úr í árnar á Flæðum.

Þyrlan fór í loftið 15.48 og var komin á staðinn rétt fyrir fimm. Fólkið var þá uppi á bílunum sem voru í hálfu kafi.

Enga stund tók að koma fólkinu í land þegar þyrlan var komin á staðinn en bílarnir sitja enn fastir.

Bílarnir festust í ánni.
Bílarnir festust í ánni. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is