Ný kynslóð hraðhleðslustöðva

Árið 2014 hóf Orka náttúrunnar uppbyggingu innviða fyrir rafbíla þegar …
Árið 2014 hóf Orka náttúrunnar uppbyggingu innviða fyrir rafbíla þegar fyrsta hraðhleðslan var opnuð við Sævarhöfða í Reykjavík.

Orka náttúrunnar (ON) hefur tekið í notkun nýjustu kynslóð af hraðhleðslustöðvum fyrirtækisins með 150 kW hleðslugetu. Stöðin er við höfuðstöðvar fyrirtækisins við Bæjarháls. 

„Nú geta rafbílaeigendur hlaðið þrisvar sinnum hraðar en áður með nýjum hraðhleðslustöðvum ON þar sem afl þeirra mun aukast þrefalt, úr 50 kW í 150 kW,“ er haft eftir Hafrúnu Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra hleðslunets ON, í tilkynningu.

Á næstu dögum verður hraðhleðslustöð ON við Miklubraut uppfærð í 150 kW og í framhaldinu verður haldið áfram að uppfæra hraðhleðslur víða um land. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á næsta ári.

Með nýju hraðhleðslustöðvunum verður hægt að hlaða tvo bíla í einu á sömu stöð. Þess ber að geta að ef tveir aðilar eru að hlaða á sama tíma í 150 kW hleðslunum þá lækkar aflið í hámark 75 kW per tengi,“ er enn fremur haft eftir Hafrúnu. Hún bendir jafnframt á að rafbíllinn sjálfur takmarkar alltaf hversu hratt hann getur hlaðið sig.

mbl.is

Bloggað um fréttina