Undirvagninn hafður með í kaskótryggingunni

Undirvagnar bíla falla nú brátt undir kaskótryggingar.
Undirvagnar bíla falla nú brátt undir kaskótryggingar. mbl.is/Árni Sæberg

Tryggingafélög eru nú að uppfæra kaskótryggingar bifreiða þannig að þær nái framvegis einnig til tjóna á undirvagni bíla. Breytingarnar taka yfirleitt gildi við næstu endurnýjun bifreiðatrygginganna.

Þetta segir á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda

Þar segir að vátryggingafélag eitt hafi tilkynnt um það að nú bæti kaskótrygginf þeirra tjón sem verði á undirvagni, hjólbörðum og felgum ef ökutækið rekst niður í akstri, ef ekið er ofan í holu eða yfir grjót á vegi.

Tekið er fram að með undirvagni sé átt við allt neðra byrði ökutækis og þann vél- og rafbúnað sem þar er að meðtalinni rafhlöðu rafbíls.

Undanskildar eru þó skemmdir sem verða í utanvegaakstri, akstri á fjallvegum og akstri yfir ár, vötn og læki.

mbl.is