Hyundai IONIQ 6 þrefaldur sigurvegari í World Car Awards 2023

Hyundai IONIQ 6 var í senn kjörinn Heimsbíll ársins, Hönnun …
Hyundai IONIQ 6 var í senn kjörinn Heimsbíll ársins, Hönnun ársins og Rafbíll ársins 2023.

Fjórhjóladrifni rafbíllinn Ioniq 6 kom, sá og sigraði á verðlaunahátíðinni World Car 2023 sem haldin var í New York fyrir páska. Hyundai á Íslandi mun kynna bílinn hér á landi í júní en fjallað verður um hann í máli og myndum á rafbílasýingu hjá Hyundai á Íslandi á morgun, laugardag.

Ioniq 6 hreppti þrenn aðalverðlaun á hátíðinni þegar hann var í senn kjörinn Heimsbíll ársins, Hönnun ársins og Rafbíll ársins 2023. Verðlaunin eru þau sömu og Hyundai Ioniq 5 hlaut á síðasta ári hjá World Car.

IONIQ 6 er boðinn frá 229 hestöflum til 325 hestafla eftir útfærslum þar sem velja má um akstur í afturhjóladrifi eða aldrifi. Bíllinn er búinn rúmlega 77 kWh rafhlöðu með 614 km drægni og er meðalorkunotkun á ekinn kílómetra um 14,3 kWh. Snerpa úr kyrrstöðu í 100 km/klst er 5,1 sekúndur.

Hleðslukerfi IONIQ 6 styður við bæði 400-V og 800-V hleðslustöðvar og getur rafkerfið einnig tekið við 400 V hleðslu án viðbótaríhluta eða millistykkja. Má sem dæmi nefna að á 350 kW hleðslustöð getur IONIQ 6 hlaðið frá 10 til 80 prósenta á aðeins 18 mínútum.

Heildarlengd Ioniq 6 er rúmir 4,8 metrar, breidd um 1,9 m og hæð yfirbyggingarinnar um 1,5 metrar. Hjólhafið er rétt um þrír metrar sem veitir gott rými fyrir aukin þægindi í farþegarýminu. Val er um 18 eða 20 tommu felgur.

Nánari grein verður gerð fyrir öryggis- og þægindabúnaði Ioniq 6 þegar nær dregur frumsýningu hjá Hyundai á Íslandi í júní.

Rafbílasýning á morgun, laugardag

Hyundai er bíll ársins, rafbíll ársins og hönnun ársins. Af því tilefni heldur Hyundai á Íslandi rafbílasýningu á morgun, laugardaginn 15. apríl í Kauptúni, þar sem sigurvegari ársins 2022, IONIQ 5, verður í salnum og tiltækir í reynsluakstur auk þess sem IONIQ 6, sigurvegari ársins í ár verður kynntur fyrir gestum í máli og myndum. IONIQ 6 verður frumsýndur í júní.

Hönnun Hyundai IONIQ 6, ekki síst straumlínulögunin og tvær vindskeiðar …
Hönnun Hyundai IONIQ 6, ekki síst straumlínulögunin og tvær vindskeiðar að aftan, mjög sportlegt og sérkennandi útlit.
mbl.is

Bloggað um fréttina