15,4% heimila á landinu bíllaus

mbl.is/Kristinn Magnússon

Bíllausum heimilum á landinu fækkaði hlutfallslega lítils háttar á seinasta áratug. Bíllaus heimili voru 20.150 samkvæmt manntali Hagstofunnar 1. janúar árið 2021 eða 15,4% af heildarfjölda heimila og hafði hlutfall þeirra lækkað frá manntalinu árið 2011 þegar bíllaus heimili voru 16,5%. Hins vegar hefur heimilum með tvo bíla eða fleiri fjölgað á milli manntala.

Flest heimili með einn bíl

Þetta kemur fram í ítarlegum niðurstöðum um tekjur heimila og bílaeign úr manntalinu, sem gert var 1. janúar 2021. Þar kemur fram að hlutfall heimila á landinu með tvo bíla eða fleiri var 37% í manntalinu 2021 en var 33% árið 2011.

Í ljós kemur að bílaeign heimila og aðgengi landsmanna að bílum er mjög mismunandi eftir heimilisgerð og búsetusvæðum.

„Alls voru bílar á 110.699 einkaheimilum 1. janúar 2021. Það eru 84,6% heimila landsins en í manntalinu 2011 var hlutfall heimila með bíl örlítið lægra eða 83,5%. Flest heimili voru með einn bíl eða rúm 62 þúsund en rúm 48 þúsund heimili voru með tvo bíla eða fleiri,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar um heimilisbílana.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina