Áfangastaður: Ísland / Geysir
Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt fárra sem þekkt var í árhundruð. Geysir gefur erlendum hverum nafn, „geyser”, og hverahrúður er á erlendum málum oft kallað „geyserite”. Fjölmargir hverir og laugar eru á svæðinu og eru goshverirnir Geysir og Strokkur þekktastir. Marteinslaug er friðlýst sem fornminjar en þar var reist torfsundlaug og var þar sundkennsla fyrir börn í sveitinni fram á síðustu öld. Árið 1894 keypti breskur maður hluta hverasvæðisins og rukkaði hann þá fyrir aðgang að því. Síðar gaf hann vini sínum svæðið. Árið 1935 keypti Sigurður Jónasson landið aftur og gaf það íslensku þjóðinni. Eftir að Geysissvæðið var girt af náði gróðurinn sér og eru þar þekktar yfir 125 tegundir háplantna og yfir 20 mosategundir.
Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á svæðinu til lengri tíma, m.a. á goshegðun Geysis og Strokks. (Heimild Umhverfisstofnun)
Úr greinasafni Morgunblaðsins
Íslandsheimsókn Danakonungs árið 1907
Tenglar
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar. Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir.Skráðu þig inn
Fréttir - Túristi
Hótel fyrir samkynhneigða á Kanarí
Næsta vetur geta hommar og lesbíur bókað gistingu á hótelum sérstaklega ætluð samkynhneigðum á Ensku ströndinni á Kanarí Meira
Flestar Michelin stjörnur í Kaupmannahöfn
Einn veitingastaður í Kaupmannahöfn var sæmdur Michelin stjörnu í dag. Bætist hann við hóp ellefu matsölustaða í borginni sem hlotið hafa þennan gæðastimpil sem flesta veitingamenn dreymir um. Kaupmannahöfn ber höfuð og herðar yfir höfuðborgir Norðurlanda þegar kemur að fjölda stjörnuveitingahúsa Meira
Nýfundið Da Vinci verk í Gautaborg
Málverkið "La Bella Principessa", sem nýlega var eignað Leonardo da Vinci, verður til sýnis í Eriksberghallen í Gautaborg næstu mánuði Meira- Mæður vinsælasti ferðafélaginn
- Tilboð á hóteli allra landsmanna í Köben
- Leigubílstjórar mega sekta sóða
- Höll danska krónprinsins öllum opin
- Eiffelturninn þekktasta kennileitið
Vegvísir - Túristi
Besta veðrið næstu daga
sunnudagur | mánudagur | þriðjudagur
-
Blönduós
ASA5 5°C
-
Stykkishólmur
A7 5°C
-
Egilsstaðir
ANA2 0°C
Áfangastaðir
Geysissvæðið
Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt ... MeiraBláa lónið
Bláa Lónið myndast af afrennsli orkuverinu í Svartsengi og er ... MeiraGagnlegir tenglar
Austurland
Norðurland
Suðurland
Suðurnes
Höfuðborgarsvæðið
Vestfirðir
Vesturland







