Ferðasögur frá notendum
Ferð Ástu Bærings
FERÐ OKKAR ÁSTKÆRU DÓTTUR, ÁSTU BÆRINGS TIL EGYPTALANDS. Það verður að segjast eins og það er, að það varð uppþot á heimilinu, þegar Ásta tilkynnti okkur í vetur, að hún væri búin að ákveða að fara í fimm vikna ferðalag í maí til Afríku. Fara átti til Egyptalands og ferðast svo meðfram Miðjarðarhafsströnd Afríku og enda svo í Casablanca í Maracco. Hún ætlaði semsagt að henda bakpoka á bakið og leggja bara af stað, EIN. ... Meira
Hestaferð á Löngufjörum, Snæfellsnesi
Dagana 9.-12. júlí fór ég í hestaferð með mömmu, pabba og 3 systkynum og fleirum. Við vorum alls 23 í ferðinni. Hestaferðin var á Löngufjörum á Snæfellsnesi. Fyrsta daginn var riðið frá Stakkhamri að Kolviðarnesi en ég og systir mín, hún Anna Soffía, gátum ekki verið með þá af því að við vorum á siglinganámskeiði í Stykkishólmi og vildum ekki missa því. Á leiðinni að Kolviðarnesi sáu þeir sem riðu, haförn í einum hólmanum og ... Meira
Beinamóinn
Það var fallegur haustmorgunn í bústaðnum okkar á Þingvöllum. Ég var búinn að segja strákunum, sem eru 6 og 7 ára, að við myndum geta farið í beinamó og berjamó. Ég hafði gengið fram á beinagrind af rollu þarna í móanum fyrr um sumarið og planið var að fara þangað og finna einhver flott bein og tína ber í leiðinni. Við löbbum þarna út um alla móa og fundum fátt annað en bláber og krækliber, ... Meira
París og himnarnir sjö
Ég opna hótel gluggann minn og um leið berast ljúfir tónar inn. Edith Piaf eftirherma snýr skífunni á spilakassanum sínum af fullum krafti meðan hún syngur um lífið, ástina og sorgina. Þegar ég halla mér örlítið fram blasir svo Sacré Coeur kirkjan við mér í allri sinni dýrð. Stórkostlegri morgunmat er varla hægt að hugsa sér. Kaffi, croissant og endalaus rómantík. En svo tekur alvaran við. Já. Dauðans alvara. Við rætur Eiffel turnsins tilkynnir vinkona ... Meira
Á ferðalagi frá Póllandi til Tékkoslóvakíu 1992 - 1993
Sem Íslendingar búandi í Gdansk Póllandi ákváðum við fjölskyldan að skella okkur í áramótaferð til Tékkoslóvakíu um áramótin 1992 - 1993. Þetta var á sama tíma og landinu var skipt í Tékkland og Slóvakíu. Við pöntuðum okkur far í hópferð með rútu sem fór eldsnemma að morgni dags milli jóla og nýárs. Það var brunagaddur úti og frostið um 15 til 20 stig. Ferðatíminn var áætlaður um tíu tímar. Við mættum á fyrirfram ákveðin stað ... Meira
Ferð til Færeyja og aftur heim
Þannig er mál með vexti að ein af mínum bestu vinkonum er færeysk. Hún heitir Guðrun í Jákupsstovu, en það þótti mér þótti óstjórnlega fyndið þegar við kynntumst. Hún flutti nýverið aftur til Færeyja og við vinkonurnar lögðumst allar í nokkurra daga þunglyndi sem ég hafði kannski minnsta ástæðu til því ég var að fara til Færeyja að hitta hana eftir rétt rúman mánuð. Flugið var seinni partinn þann 24. júlí og ég var ómöguleg ... Meira
Les Trois Mousquetaires taka Evrópu með trukki
Herðabreiður maður með þykkar augabrýr, risavaxinn munn og blóðug ör í andliti dregur upp byssu og beinir henni að mér með leðurhanskaklæddri krumlu. Mig langar að biðjast vægðar en kem engu orði upp. Öðru máli gegnir um böðulinn sem muldrar eitthvað út um annað munnvikið: „Hasta la vista, baby.“ Ég finn hjá mér skyndilega löngun til að hlæja að fáránlega framburðinum hans en hláturinn kafnar í hálsinum á mér þegar skotið ríður af. Háværar hryglur ... Meira
Konunni rænt!
16. maí 2007 átti konan mín (þáverandi kærasta) 26 ára afmæli. Í tilefni þess höfðum við ákveðið að fara til Ljubljana í Slóveníu og dvelja þar í tæpa viku. Þangað hafði ég komið áður og langaði til þess að sýna henni Slóveníu sem er æðislegt land. En hún hélt s.s að við myndum fara þann 17. maí, daginn eftir afmælið. En ég var búinn að undirbúa þetta nokkuð vel og mætti til hennar í vinnuna ... Meira
2 blá strik í Köben
Árið 2006 fórum ég og kærastan mín (sem er konan mín í dag) til Kaupmannahafnar. Réttara sagt í desember það ár. Við vorum til þess með að gera ný byrjuð saman. En við byrjuðum saman þann 31. ágúst sama ár. Okkur langaði til þess að fara til Köben og versla aðeins og njóta ,,Julefrokost" í gömlu höfuðborginni. Við flugum út með Iceland Express og komum okkur til Köben og fundum hótelið sem við ætluðum að ... Meira
Mannkynssaga á reiðhjóli
Heimsókn til Berlínar er táknræn fyrir sögu manns og þjóða. Múrinn sem var, vitnar um heimsku mannsins. Múrinn sem horfinn er, minnir okkur á að vilji og þor áorka mörgu. Fórnir og höft tilheyra ekki aðeins framandi heimsálfum og öðrum öldum. Nú iðar borgin af lífi. Alþjóðlegir straumar í listum, mannlífi, mat og skemmtunum. Frjálslynd borg, að sögn þeirra sem til þekkja. Hjólaferð um Berlín er upplifun. Engu líkt að hjóla milli glæsilegra verslana, sögufrægra ... Meira
Á ferð með Lindu
Fyrir nokkrum árum áður en ég gerðist eins einhverf og félagsfælin og ég er í dag var ég í Norræna félaginu. Þetta olli mér oftast hugarangri en stundum var líka gaman. Við stóðum meðal annars fyrir ferðum á vinabæjarmót á Norðurlöndunum. Þeir sem fara í svona ferðir eru flestir komnir yfir sextugt en sumir yfir áttrætt. Við fórum frækna ferð til Danmerkur með 16 manna hóp. Flogið var til Billund því vinabærinn er á miðju ... Meira
Minningar frá Katmandú
Minningar frá Katmandú Ég man eftir koma í rútuskrifli inn til borgarinnar í ljósaskiptunum og sjá allt fólkið, hundana, nautgripina, bílana, mótorhjólin, skrölta um holóttar götur milli opinna holræsa og sjá hvernig myrkrið færðist yfir borgina. Ég man eftir að sitja uppi á þaki á hótelinu og hlusta á andardrátt borgarinnar sem barst í húminu við sólarlag, hrægammarnir í stórum svermum sveimandi yfir og bænaflöggin blaktandi á þökum húsa tíbetanna. Ég man eftir að vakna ... Meira
Óhappaferð húsmóðurinnar
Fyrir nokkrum árum ákvað ég að heimsækja vinkonu mína sem býr í Manchester á Englandi. Þetta átti að vera afskaplega notaleg ferð sem ég kallaði húsmæðraorlofið mittÉg hafði aldrei ferðast utanlands ein áður né skilið börnin mín tvö eftir með pabba sínum, svo það var ekki laust við pínu hnút í maganum rétt fyrir brottför. Þegar út á flugvöll var komið lagði ég bílnum í langtímastæði og kannaði vel staðsetninguna svo auðvelt yrði að finna ... Meira
"I survived Venice"
Fyrir nokkrum árum síðan ferðaðist ég ásamt stórum hópi kvenna í kórferðalagi til Slóveníu. Einn af hápunktum ferðarinnar var dagsferð til Feneyja. Það er náttúrulega sjálfgefið að heimsókn til Feneyja er ógleymanleg, byggingarnar og menningin er einstök að maður tali nú ekki um þá upplifun að sigla með gondóla þó að við fengum reyndar ræðarann ekki til að syngja fyrir okkur. Þetta var líka frábær dagur, veðrið var gott, hitinn var langleiðina í 30 gráðurnar ... Meira
Stórkostleg óvissuferð.
Komin heim í heiðardalinn eftir stórkostlega óvissuferð. Það var skemmtileg gjöf sem ég fékk frá vinkonu minni í vor. Kort sem í stóð: Óvissuferð með mér eitthvað út í buskann. Í síðustu viku fékk ég inn um bréfalúguna umslag þar sem í var bréf og upplýsingar um að upp væri að renna ögurstund, ferðin skyldi hefjast kl 7:45 á mánudagsmorgninum 17 ágúst. Skyldufarangur var vasaljós, nál og svartur tvinni, sérviettupakki, þjóðhátiðargleraugun, lúnir skór, lúnar buxur ... Meira
Víkingabrúðkaup á Írlandi
Víkingabrúðkaup á Írlandi Faðir minn á yngri bróður sem fór í háskóla til Írlands og sneri ekki aftur til Íslands til starfa. Á Írlandi hitti hann konu og ákváðu þau eftir nokkra ára samveru að gifta sig. Þá var boðið allri íslensku fjölskyldunni í brúðkaup til Írlands og tókum við því boði vel og mættu allir úr íslensku fjölskyldunni þangað. Á þriðjudaginn var flogið út með iceland express til London. Þar var stoppað í nokkra ... Meira
Listamenn, bækur,módel og gúanóilmur á Skagen
Þetta er ferðasaga sem byggir á málshættinum að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Þúfan er í þessu tilfelli tinaskja undir sígarettur. Dósina fann ég í verslun í Árósum þar sem ég bjó fyrir 25 árum á þeim tíma þegar ég reykti. En, nú má ég ekki sökkva niður í dagdrauma um sígarettureyk og hringi; sem svo gaman var að móta með stút á munni og þykjast veraldarvanur. Það sem ég féll fyrir og heillaði ... Meira
Hamingjan sanna
Bátsskel skoppar á froðufellandi öldu í norðaustan skítabrælu. Á meðan ég æli eins og múkki, sé ég útundan mér hvar fýllinn sleikir hvítan öldufald, fylgir bátnum þar sem hann fleytir kerlingar á ferð sinni norður fyrir Ritur, norður fyrir Straumnes, norður fyrir Kögur inn í Hlöðuvík. Fölir ferðalangar stíga á land, skjögra í stórgrýtinu með farangur, koma honum upp á bakkann. Hvítbotnótt tófa tekur skælbrosandi á móti okkur í heimreiðinni. Upp úr hvannastóði má greina ... Meira
Hættulegasti staður í heimi?
Ég viðurkenni að ég var stressuð. Mjög stressuð. Allar hræðilegu sögurnar, fréttamyndirnar og dánartilkynningarnar hafa sjálkrafa gefið Gaza titilinn "hættulegasti staður í heimi". Tæp þriggja mánaða dvöl mín í Ísrael og Palestínu var hálfnuð og ég hafði þegar flakkað um Gyðingaríkið að stórum hluta og víðsvegar um Vesturbakkann. Það var því bara einn áfangastaður ókannaður á landakorti mínu af þessum heimshluta: Gaza. Ég og tveir hollenskir samnemendur mínir gátum ekki hugsað okkur að halda heim ... Meira
Aldrei dæma bók af kápunni.
Árið 1996 var einhverskonar keppni á milli tveggja stærstu dagblaða Svíþjóðar, Expressen var með skrafmiða og Aftonbladet var með símanúmer og kóða þar sem maður átti að hringja og svara þremur spurningum og sá sem myndi svara fljótast, vann. Ég man að ég keypti Expressen og skóf miðann og síðan las ég í sama blaði að ef það fylgdi ekki með miði væri bara að hringja í visst númer og þeir myndu senda nýjan miða ... Meira
Álfar út úr hól - ferðasaga frá Nýja Sjálandi
Fyrir nokkrum árum áttum við hjónin kost á því að fara í tveggja vikna ferð til Nýja Sjálands. Þetta var mikil ævintýraferð í alla staði en einn atburður umfram aðra gerir þessa ferð þó sérlega eftirminnilega í hugum okkar. Fyrri hluta tíma okkar þarna syðra dvöldum við í stórborginni Auckland á norðureyju Nýja Sjálands. Borgin er skemmtileg blanda nýrra og gamalla tíma og þar er margt að skoða. Líktog Reykjavík er Auckland umflotin hafi enda ... Meira
Listaborgin ljúfa
Háskólaborgin Perugia á Ítalíu er staðsett um það bil á miðri Ítalíu. Hún er miðja vegu milli Bologna og Rómar. Hún er stærsta borg Umbriahéraðs, sem er sunnan við Toscana. Þeir sem eru á annað borð komnir til Ítalíu, ættu hiklaust að gera sér ferð þangað, með því að leigja sér bíl eða hoppa upp í næstu lest. Það er ævintýri út af fyrir sig að ferðast með lest um Umbriahérð, þar er undurfagurt, ekki ... Meira
Skessuhorn á Skarðsheiði
Af tindi Skessuhorns á Skarðsheiði er hægt að njóta einhvers besta útsýnis á Vesturlandi, og fyrir þá sem vilja komast í alvöru fjallgöngu en hafa bara hálfan daginn aflögu er Skessuhornið kjörið, að sumarlagi. Best er að leggja upp við bæinn Horn í Skorradal, en þar er ekki búið. Vilji menn fara fótgangandi þaðan er það vel hægt, en þá er gönguhækkunin um 900 metrar upp á topp (963 metrar). Auðveldara er hins vegar, að ... Meira
Laugavegurinn á hlaupum
Ég hef þrisvar farið Laugaveginn milli Landmannalauga og Þórsmerkur og leiðin verður fallegri í hvert skipti. Fyrst gekk ég veginn sumarið 1998 með nokkrum valinkunnum heiðursmönnum. Við bárum allan farangur á bakinu og spöruðum ekki við okkur í mat, nema síður væri. Fyrir vikið voru bakpokarnir þungir (eða a.m.k. pokinn minn) og gangan, sem tók fjóra daga, reyndi verulega á styrk og þol. Sérstaklega var þriðji dagurinn erfiður en þann dag töldum við okkur hafa ... Meira
Perla falin í Skagafirði
Í Fljótum má á sumrin sjá öll tilbrigði hins græna litar og fegurðin þar er því sem næst yfirnáttúruleg á góðum degi. Gistimöguleikar eru þó nokkrir í nágrenninu og má þar nefna t.d. ferðaþjónustuna í Lónkoti, Sauðárkrók og þorpin í næsta nágrenni. Auk þess er hægt að fá gistingu í grunnskólanum í Sólgörðum í Vestur-Fljótum. Haganesvík er perla Fljótanna. Þar var áður fyrr útgerð en nú er þar aðeins brotinn bryggjustúfur. Hann lét undan í ... Meira
Bær hins langa vetrar
Áfangastaður: Tromsö, stundum nefnd höfuðborg Norður-Noregs. Fjarlægð: 1.854 km fjarlægð frá Reykjavík. Ferðatími: Sé millilent í Ósló tekur hálfan dag að komast til Tromsö. Tveir og hálfur tími fara í flugið til Ósló og er þá lent á Gardemoen um hádegið. Flugið með SAS til Tromsö tekur hins vegar aðeins um 50 mínútur. Reikna má með einhverri bið á Gardemoen. Staðartími: Tromsö er tveimur tímum á undan Íslandi og vegur það á móti ferðatímanum. Aðflugið ... Meira
Fréttir - Túristi
Hótel fyrir samkynhneigða á Kanarí
Næsta vetur geta hommar og lesbíur bókað gistingu á hótelum sérstaklega ætluð samkynhneigðum á Ensku ströndinni á Kanarí Meira
Flestar Michelin stjörnur í Kaupmannahöfn
Einn veitingastaður í Kaupmannahöfn var sæmdur Michelin stjörnu í dag. Bætist hann við hóp ellefu matsölustaða í borginni sem hlotið hafa þennan gæðastimpil sem flesta veitingamenn dreymir um. Kaupmannahöfn ber höfuð og herðar yfir höfuðborgir Norðurlanda þegar kemur að fjölda stjörnuveitingahúsa Meira
Nýfundið Da Vinci verk í Gautaborg
Málverkið "La Bella Principessa", sem nýlega var eignað Leonardo da Vinci, verður til sýnis í Eriksberghallen í Gautaborg næstu mánuði Meira- Mæður vinsælasti ferðafélaginn
- Tilboð á hóteli allra landsmanna í Köben
- Leigubílstjórar mega sekta sóða
- Höll danska krónprinsins öllum opin
- Eiffelturninn þekktasta kennileitið
Vegvísir - Túristi
Besta veðrið næstu daga
sunnudagur | mánudagur | þriðjudagur
-
Blönduós
ASA5 5°C
-
Stykkishólmur
A7 5°C
-
Egilsstaðir
ANA2 0°C
Áfangastaðir
Geysissvæðið
Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt ... MeiraBláa lónið
Bláa Lónið myndast af afrennsli orkuverinu í Svartsengi og er ... MeiraGagnlegir tenglar
Austurland
Norðurland
Suðurland
Suðurnes
Höfuðborgarsvæðið
Vestfirðir
Vesturland








