FERÐASÖGUR: Luksor – Egyptaland
Ferð Ástu Bærings
FERÐ OKKAR ÁSTKÆRU DÓTTUR, ÁSTU BÆRINGS
TIL EGYPTALANDS.
Það verður að segjast eins og það er, að það varð uppþot á heimilinu, þegar Ásta tilkynnti okkur í vetur, að hún væri búin að ákveða að fara í fimm vikna ferðalag í maí til Afríku.
Fara átti til Egyptalands og ferðast svo meðfram Miðjarðarhafsströnd Afríku og enda svo í Casablanca í Maracco. Hún ætlaði semsagt að henda bakpoka á bakið og leggja bara af stað, EIN.
Ég, pabbinn vil samt taka það skýrt fram, að orðrómur um taugaáfall mitt er stórlega ýktar. Það var mamman. Ég að vísu skal viðurkenna, ef það fer ekki
lengra, að nokkrar neglur hurfu í nagi, en hvað með það.
Ég lagðist á bæn, og spurði þann í Efra, sem öllu ræður, hvernig honum dytti þessi ósköp í hug. Það hefur alltaf verið sagt, að það væri foreldranna fag, að móta börnin sín. Það eru vörusvik, að láta okkur fá barn, sem fyrirfram væri mótað. Og það stelpu.... Ekkert svar.
Jæja, eftir andvökunætur og byltur í rúmi, kom loks smá birta. Sá í Efra virtist hafa séð aumur á okkur hjónum eftir alvörusamtal mitt við hann, og opnað glugga, eftir að hafa skellt á mig hurðinni.
Semsagt, Ásta kom til okkar og tilkynnti að hún ætlaði að reyna við dansprufu til að komast í söngleikinn Grease. Það stórkostlega við þetta var, að æfingarnar áttu að hefjast í maí, á sama tíma og ferðalagið var planað. Hjartað í okkur hoppaði af gleði. Ég fór að safna nöglum aftur, og mamma stórlagaðist í umgengi.
En pabbi var ekki lengi í paradís...... Það voru 300 manns sem ætluðu í prufuna, og ekki nema 4 teknir inn.
Ég pantaði strax tíma hjá honum í Efra. Á þeim fundi sagði ég honum hreint út, að hann yrði að redda þessu fyrir mig. Ekkert svar......
En hún komst inn.
Það voru brosandi foreldrar, sem fóru í rúmið, það kvöldið.
Þá kom sprengjan, SPRENGJAN.
Okkar yndislega dóttir tjáði okkur, meira að segja brosandi, að hún væri búin að redda þessu öllu saman. Í stað þess að fara í frí í maí, þá ætlaði hún að fara í apríl, að vísu í styttri ferð, til Egyptalands í 18 daga og vera eingöngu þar. Það þyrmdi yfir okkur. Þetta var tapað spil.
Ég pantaði ekki tíma hjá honum í Efra. Vonlaust.
En það verður að segjast eins og er, að ég á medalíu skilda, fyrir ró mína og framkomu þegar aðrir sáu til. Það verður ekki það sama sagt um mömmu, sem kvartaði nú látlaust yfir eldamennsku minni, en ég er afar viðkvæmur fyrir því. En í einrúmi fóru heilu eldhúsrúllurnar í táraflaumi.
Er að brottför leið náði ég samkomulagi við Ástu, að við mundum senda hvort öðru SMS á hverjum degi, svo við vissum að allt væri í lagi.
Ásta ætlaði líka að ferðast ódýrt, en hún er meðlimur í alþjóðasamtökum sem heita Couch surfing og gengur út á að gista á sófanum hver hjá öðrum. Svo ætlaði hún líka að gista á farfuglaheimilum.
Svo rann upp dagurinn, hún fór.
Hér koma samskiptin á SMS.
Ásta.
Er komin til Hurghada. Mega Happy. Fer að synda með höfrungum á morgun
Pabbi.
Elsku krúsindúllan mín, gangi þér allt í haginn. Mundu beggja hliða.
Pabbi.
Góðan daginn elsku prinsessan okkar. Brostu, þá brosa blómin til þín.
Ásta.
Blómin brostu til mín í dag. Fór að kafa. Varði öllum deginum í Rauðahafinu. Á morgun fer ég í smá safari. Hlakka til.
Pabbi.
Bros er fegurð, brosið þitt er demantur dagsins.
Ásta.
Elska þig líka pabbi. Eg er núna að bíða eftir rútu til Luxor. Verð þar líka á morgun. Þetta er allt öðruvísi en ég hef séð áður. Gaman.
Pabbi.
Þú ert minn súkkulaðiís.
Þú ert minn sælgætisgrís
La la la la la la.
Ásta.
Halló. Ég sendi email í gær. Kíktu. Ég er að skoða piramidana í Kairo. Alltaf gengur vel, knús.
´
Ásta (email).
Hallo hallo elsku pabbi og mamma.
Frettir fra Egyptalandi - sama og eg setti inna Facebook fyrir vinina ad lesa.
Hurghada var frabaer og tad er serstaklega theim Natalie og Rami ad thakka. Eg gisti hja theim i gegnum couchsurfing.com og thau voru svo gestrisin ad that halfa hefdi verid nog, enda lengdi eg dvolina um eina nott. Thar for eg til daemis ad kafa i Raudavatninu sem var geggjad! Sa alla litriku fiskana sem syntu i kringum mig og nortudu i fingurinn a mer. Sa litla stingskotu og kolkrabba og svona skel eins og i teiknimyndunum haha sem ad er eins og stor munnur med bugdottar varir og opnar sig og lokar eftir areiti. Thad var aedi.
Eg er buin ad vera i tvo og halfan dag i Luxor nuna og that er storundarlegt, vaegast sagt. Eg hef aldrei nokkurn timann upplifad jafn svakalegt areiti fra karlmonnum eins og her. Thad tekur mann ageatlega a taugum, ekki thad ad eg se smeyk heldur er hropad, kallad, starad og madur eltur af krokkum og monnum...jebb - thid getid eiginlega ekki skilid thetta nema ad thid seud hvit, ung kona sem er ad ferdast ein i Egyptalandi.
Minjarnar eru storkostlegar eiginlega half surrealiskar og eg vona ad myndirnar minar seu godar. Eitt thad skemmtilegasta sem eg hef gert her var ad leigja eldgamalt og iskrandi reidhjol og taka bat yfir a Vesturbakkann. Eg hjoladi sidan i gegnum baeinn, framhja engjunum og alla leid i The Temple of Hatshepsut, Colossi of Memnon og sidast en ekki sist tha hjoladi eg eins og einhver gedsjuklingur alla leid i Valley of the Kings....i freakin' 45 gradu hita!!! Enda tok eg leigubil tilbaka ad batnum hahaha. Tharna hitti eg Frakka sem ad hjoladi med mer i baeinn og syndi mer helling og spjolludum vid yfir vatnsopa a medan konur klaeddar fra toppi til taar roltu framhja, born stodu fyrir framan mig og stordu a mig og folk ridandi a osnum theysti..eda thannig framhja.
I dag for eg i Karnak Temple sem er rosalegt, tok flottar myndir og tyllti mer hja sulunum og skrifadi i ferdadagbokina og bragdadi a nestinu minu...mjog god stund. Sidan er eg bara buin ad vera ad kafna ur hita thvi vindurinn blaes litid sem ekkert fra Nil i dag og stalst eg thvi inn a fint hotel og eyddi 2 klst i sundlaugargardinum. Er nuna a farfuglaheimilinu, Bob Marley House, aetla ad ganga fra og fer med lest til Cairo i kvold med naeturlestinni.
Jaeja darlings, thetta er nog i bili segi ykkur fra Nilarferdinni og Bananaeyjunni thegar eg hitti ykkur. Naest kem eg med sma frasogn fra Cairo og Alexandriu :)
Astarkvedjur!
Pabbi.
Bjartur í Sumarhúsum sagði: Ef maður á lífsblóm, þá er allt í lagi
Ég á lífsblóm.
Ásta.
Er stödd í Carbage city, fólk sem býr með ruslinu. Ótrúlegt. Verð í Kairo fram á mán/þri.
Á þessum tímapunkti hafði ég ekkert fengið frá henni í tvo daga.
Pabbi.
Ef sms ið ekki fæ
ég steypist út í verkjum.
Upp í nefið ekki næ
á fætur fer með herkjum.
Ásta.
Hæ pabbi. Tölvupóstur bíður þín. Knús og kram.
Ásta (email).
Hae pabbi og mamma :)
Eg er buin ad vera i Kairo i 2 daga og er buin ad hitta lithaenska stelpu og 3 tyrkneskar stelpur og vid erum bunar ad skoda allt saman. Thetta er afar ahugaverd ferd og tad er ekki haegt ad segja annad en ad eg se ad vikka sjondeildarhringinn og skilja betur menningu sem ad madur hafdi bara yfirbordskenndar hugmyndir um.
Eg veit ekki hvort eg fer til Alexandriu i dag eda verd i Kairo fram a manudaginn - mer bydst nefnilega ad fara i salsadanskennslu a manudaginn her i Kairo.
Thetta eru 8 dagar sem eru eftir af ferdinni og a eg eftir ad kikja a Alexandriu og keyra Sinai-skagann og fara thar upp a fjallid og heimsaekja Dahab og Sharm-el-Sheik. Aetla pottthett ad na 2 nottum i Sharm-el-Sheik a hoteli i rolegheitum.
Jaeja eg kved ad sinni.
Ykkar aevintyragjarna dottir, Asta.
Pabbi.
Elsku dúllan mín. Megi guðirnir gefa þér góðan dag
Heilræði frá mömmu
Lifðu í lukku, ekki í krukku.
Ásta.
Kveðja frá Kairo. Tek næturrútuna til Dahab á morgun . Verð komin þangað að morgni þri. Koss.
Nú hafði ég ekkert heyrt frá henni í tvo daga og var að verða galinn. Búinn að panta flug með Icelandair til London, og áfram til Kairo með British Airwais, að vísu allt í huganum.
Pabbi.
Heldur vil ég hafa þig
hjá mér allan tímann.
Alveg ert að drepa mig
Ef svarar ekki í símann.
Pabbi.
Á sófanum sefur í ókunnu landi
skynjar þar söguna fulla af sandi.
Og fólkið vill snerta stúlkuna mína
sem komin er þarna úr allt öðrum tíma.
Pabbi.
Góðan daginn gullið mitt
gangi þér allt í haginn.
Hof og hallir, þetta og hitt
þú hefur allan daginn.
P.S. Kosið í dag
Pabbi.
Góðan daginn prinsessa. Verð að vara þig við svínaflensu. Er að verða heimsfaraldur. Hár hiti, hósti, hausverkur. Varastu fólk frá Mexico. Á annað hundrað látnir. Farðu varlega.
Ásta.
Lofa að fara varlega. Forðast alla sem hósta. Hlakka að fara í sólina í Dahab.
Pabbi.
Góðan daginn elsku stelpan mín.
Hér er einn hugbrjótur.
Hvernig hljómar klapp annarrar handar.
Pabbi.
Nú stíflaður orðinn að skrifa
og spakmælin man ekki nein.
Erfitt er orðið að lifa
ef ferð ekki að koma þér heim.
Ásta.
Hallo besti pabbi minn.
Eg kem heim a morgun med Icelandair, FI455, lending kl.23:10. Eg vona ad thu komir galvaskur ad saekja mig.....
Hlakka svo til ad hitta ykkur.
Asta.
Ásta.
Er batteríislaus. Er stödd á Heathrow. Sjáumst í kvöld kl 23.10.
Það var glaður pabbi sem sótti stelpuna sína um kvöldið, og sem gladdi mig ekki síður, ég held að hún hafi ekki verið síður ánægð að hverfa í faðminn á pabba sínum.

Fréttir - Túristi
8000 umhverfisvæn hótel
Fjöldi umhverfisvænna gististaða á lista Green Travel Finder eykst jafnt og þétt. Í byrjun árs bættist áttunda þúsundasta hótelið á skrá síðunnar. Ferðaþjónusta bænda er eina íslenska fyrirtækið á listanum Meira
Hótel fyrir samkynhneigða á Kanarí
Næsta vetur geta hommar og lesbíur bókað gistingu á hótelum sérstaklega ætluð samkynhneigðum á Ensku ströndinni á Kanarí Meira
Flestar Michelin stjörnur í Kaupmannahöfn
Einn veitingastaður í Kaupmannahöfn var sæmdur Michelin stjörnu í dag. Bætist hann við hóp ellefu matsölustaða í borginni sem hlotið hafa þennan gæðastimpil sem flesta veitingamenn dreymir um. Kaupmannahöfn ber höfuð og herðar yfir höfuðborgir Norðurlanda þegar kemur að fjölda stjörnuveitingahúsa Meira- Nýfundið Da Vinci verk í Gautaborg
- Mæður vinsælasti ferðafélaginn
- Tilboð á hóteli allra landsmanna í Köben
- Leigubílstjórar mega sekta sóða
- Höll danska krónprinsins öllum opin
Vegvísir - Túristi
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
ANA4 6°C
-
Reykjavík
A8 6°C
-
Stórhöfði
A16 5°C
Áfangastaðir
Geysissvæðið
Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt ... MeiraBláa lónið
Bláa Lónið myndast af afrennsli orkuverinu í Svartsengi og er ... MeiraGagnlegir tenglar
Austurland
Norðurland
Suðurland
Suðurnes
Höfuðborgarsvæðið
Vestfirðir
Vesturland








