Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Hafðu samband

FERÐASÖGUR: Snæfellsjökull – Ísland

Hestaferð á Löngufjörum, Snæfellsnesi

Snæfellsjökull, Ísland

Dagana 9.-12. júlí fór ég í hestaferð með mömmu, pabba og 3 systkynum og fleirum. Við vorum alls 23 í ferðinni. Hestaferðin var á Löngufjörum á Snæfellsnesi. Fyrsta daginn var riðið frá Stakkhamri að Kolviðarnesi en ég og systir mín, hún Anna Soffía, gátum ekki verið með þá af því að við vorum á siglinganámskeiði í Stykkishólmi og vildum ekki missa því. Á leiðinni að Kolviðarnesi sáu þeir sem riðu, haförn í einum hólmanum og bóndinn í Skógarnesi sagði þeim að hann ætti þar hreiður. Til að geta riðið fjörurnar þarf að fylgjast með sjávarföllum því það er bara hægt að ríða þær á fjöru (ekki á flóði).

Á föstudeginum náðum við að fara í síðasta tímann á siglinganámskeiðinu af því að það var ekki hægt að fara af stað frá Kolviðarnesi fyrr en klukkan 14:00 útaf sjávarföllunum. Mér fannst leiðin alveg ágæt en fyrst var hún svolítið hræðileg, það var svo grýtt og sleipt því í fyrstu þurftum við að ríða efst í fjörunni af því að sandurinn var enn svo blautur. Loksins fórum við niður á sandinn og það var mjög gaman en ég vildi samt að við hefðum farið hraðar en litli bróðir minn, hann Valdi, sem er 6 ára var með og við gátum þess vegna ekki farið mjög hratt. Þegar við vorum komin niður á sandinn þá byrjaði Valdi að syngja lagið sem Helgi Björns syngur:

Ríðum og ríðum og rekum yfir
sandinn,ríðum sem fjandinn
Sláum í gandinn svo að skemmti sér landinn
Ríðum og ríðum og rekum yfir
sandinn, ríðum sem fjandinn
Sláum í gandinn þetta er stórkostleg reið
Glóð er enn í öskunni og
flatbrauðsneið í...............

Það var svolítið fyndið.

Hesturinn sem ég var á heitir Ljúfur og er mjög góður en hann er svolítið mikið frekur en samt er hann besti hestur sem ég hef farið á. Á leiðinni datt hesturinn hans Valda og Valdi datt fram fyrir sig beint á andlitið. Það var ótrúlegt að sjá þegar hesturinn sem heitir Kjara var að standa upp þá passaði hún sig svo rosalega vel að stíga ekki á Valda sem lá í sandinum. Mamma hoppaði af og fór til hans og hann var hágrátandi og allur í sandi í framan. Í fyrstu ætlaði hann alls ekki að fara á bak aftur en mamma náði að plata hann og lét hann setjast á hnakkinn og sagðist ætla að þurrka af honum sandinn en svo þegar það var búið var allt í lagi og við héldum bara áfram. Við rötuðum ekki alveg leiðina úr fjörunni og að Stakkhamri, við fórum of snemma upp úr fjörunni og lentum í ógöngum. Hestarnir sukku í leirinn eða drulluna og við komumst því ekki stystu leið að Stakkhamri. Við þurftum að fara smá krókaleið til baka og þegar hesturinn hennar mömmu var að stökkva yfir smá bunu þá missti mamma jafnvægið og datt af baki, við systurnar fórum því aðra leið. Þetta tókst að lokum og við komumst á Stakkhamar. Þegar við loksins komum þangað þá slepptum við hestunum og fórum á tjaldsvæðið á Görðum, þar sem við gistum, að sækja sundfötin.

Við fórum í sund á Lýsuhóli og var það mjög skemmtilegt en vatnið var svolítið skrítið, það var alveg brúnt eins og drullupollur af því að vatnið kemur, held ég, úr ölkeldunni sem er þar rétt hjá. Eftir sundið fórum við á tjaldstæðið og borðuðum. Eins og ég sagði áðan þá gistum við á Görðum sem er mjög gott og skemmtilegt tjaldsvæði og það er strönd og allt hjá því. Í matinn var humar og meðlæti en það var líka pylsur og kjöt fyrir þá sem ekki vildu humar. Um matinn, sem var mjög góður, sá maður sem heitir Sæþór og hann á og vinnur á Narfeyrastofu í Stykkishólmi, hann reið líka með okkur. Eftir matinn fórum ég, Valdi, Anna Soffía og Berglind niður á ströndina og lékum okkur. Við eltum öldurnar og hlupum svo til baka þegar þær komu að. Stundum voru öldurnar svo fljótar að þær náðu okkur og þá blotnuðum við í fæturna. Þegar við vorum búin að vera þarna í svolítinn tíma þá datt Valdi og aldan náði honum og hann varð alveg rennblautur. Við héldum af stað á tjaldstæðið í þurr föt og ákváðum að fara þarna í sundfötum daginn eftir.

Morguninn eftir vaknaði ég langt á undan hinum og fór með hundinn minn, sem heitir Kátur, niður á strönd. Ég lék við hann þar í dálítinn tíma. Ég fór síðan á tjaldsvæðið og fór í sundföt og beið eftir að hinir vöknuðu. Þegar þau loksins vöknuðu þá fengu þau sér morgunmat en ég var þegar búin og mér fannst það taka óskaplegan tíma. Á ströndinni gerðum við margt skemmtilegt, syntum og skemmtum okkur. Mér fannst mjög gaman að sitja í sjónum og þegar öldurnar komu þá lyftumst við alveg upp og líka þegar við stóðum og reyndum svo að stökkva yfir öldurnar en svolítið erfitt. Ég tíndi marga fallega steina en því miður þurftum við svo að fara til að ná fjörunni, því eins og ég sagði áðan þá þarf að fara á sérstökum tíma og þess háttar.

Þennan dag þá riðum við frá Stakkhamri að Fossi. Þessi leið var bara fín og rosalega gaman að ríða eftir sandinum en ég var með smá harðsperrur eftir gærdaginn þannig að það var ekkert mjög þægilegt. Þegar við vorum næstum komin var Valdi orðinn svolítið hræddur af því að hesturinn hans var orðinn svo æstur í fjörunni og fór svo hratt og Valdi vildi ekki fara svona hratt. Það varð úr að mamma og Valdi ætluðu að labba afganginn og ég slóst í för með þeim. Vegalengdin var svolítið lengri en hún sýndist í fyrstu og þess vegna vorum við svolítið lengur en ég hélt.

Allt í einu kom pabbi með hestana okkar og sagði okkur að við þyrftum að fara á bak af því að annars kæmumst við ekki yfir á sem var þarna. Það var hópur rétt fyrir aftan okkur en hann reið samt neðar í fjörunni. Þau fóru á undan okkur yfir ána en við bara rétt á eftir. Hundurinn minn hann Kátur ruglaðist á okkur og þeim og þegar hinn hópurinn var kominn upp úr ánni og hann ennþá syndandi þá hélt hann að þetta værum við og gelti og gelti og hélt að við ætluðum að skilja hann eftir. En að lokum þá fattaði hann að þetta voru einhverjir aðrir og beið eftir okkur. Við héldum síðan áfram að Fossi og komum þangað eftir svona hálftíma.

Á Fossi býr maður sem heitir Svenni, hann á mörg falleg dýr. Til dæmis fjórar litlar sætar kanínur, hesta, kindur, hund sem mér fannst alveg voðalega líkur Káti í framan og svo landnámshænur og á hananum höfðu hænurnar kroppað af honum stélið þegar hann var ungur og Svenni hélt að það myndi vaxa með árunum en svo gerði það það ekki og haninn er með minna stél en hænurnar. Eftir að við fórum frá Fossi þá fórum við á Stakkhamar og í fjósið þar sem okkur systkinunum hafði verið boðið að taka þátt í að mjólka.

Í fjósinu fengum við að þrífa spenana og bera á þá krem. Við fylgdumst líka bara með og mér fannst alveg ótrúlegt að bóndinn mundi flest nöfn kúnna sem voru um 30. Á Stakkhamri er fjósið voðalega tæknilegt og þegar maður mjólkar þá stendur maður ofaní svona gryfju og kýrnar eru fyrir ofan mann þannig að maður þarf ekkert að beygja sig eða neitt þannig. Ég fékk að smakka mjólk beint úr spenanum og mér fannst hún alveg ágæt, svolítið heit en samt fín. Selma, sem er stelpa sem kemur þangað á sumrin af því að amma hennar og afi búa þarna, sprautaði upp í mig og Valda og það var mjög gaman. Það var alveg mjög gaman í fjósinu og ég vona að ég geti farið þangað aftur.

Við fórum á tjaldsvæðið klukkan um 22:00 og var maturinn rétt að byrja af því að allir voru í sundi og í þetta sinn var grillveisla. Kjöt, meðlæti, pylsur og afgangur af humrinum og það var mjög gott. Ég fór smá á ströndina eftir matinn en fór síðan upp á tjaldstæði og fór að sofa.

Næsta dag var riðið til baka, sem sagt frá Fossi að Stakkhamri. Við riðum sömu leið og í gær þannig þetta var mjög svipað en samt mjög skemmtilegt. Valdi gat ekki riðið þennan dag því hesturinn hans var orðinn haltur og þá þurfti mamma að vera hjá honum. Ég var aftur á hestinum Ljúfi sem afi minn á og hann er alveg rosalega góður. Ég var reyndar á honum allan tímann. Á leiðinni sáum við mjög flottan klett sem var mjög sléttur og fínn og það voru teknar hópmyndir og við krakkarnir fórum upp á klettinn og það var mjög skemmtilegt. Þegar við komum að Stakkhamri þá fór ég og Anna Soffía að vaða í fjörunni eða ströndinni þar. Ströndin á Stakkhamri er eiginlega svona leir og maður sekkur alveg ofaní leirinn. Mér finnst það mjög þægilegt en samt svolítið fyndið. Á leiðinni heim þá stoppuðum við á Vegamótum og fengum okkur að borða. Þetta var alveg rosalega skemmtileg ferð og ég vona að ég fari einhverntíman aftur í svona ferð.

Halldóra Kristín Lárusdóttir 12 ára
Nestúni 4
340 Stykkishólmur

Hótelleit

Ferðasögur 2009

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Í samvinnu við Kaupþing

Fréttir - Túristi

Turisti.is | 19.3. | 21:11
Hótel fyrir samkynhneigða á Kanarí
Næsta vetur geta hommar og lesbíur bókað gistingu á hótelum sérstaklega ætluð samkynhneigðum á Ensku ströndinni á Kanarí  Meira
Turisti.is | 16.3. | 08:29
Flestar Michelin stjörnur í Kaupmannahöfn
Einn veitingastaður í Kaupmannahöfn var sæmdur Michelin stjörnu í dag. Bætist hann við hóp ellefu matsölustaða í borginni sem hlotið hafa þennan gæðastimpil sem flesta veitingamenn dreymir um. Kaupmannahöfn ber höfuð og herðar yfir höfuðborgir Norðurlanda þegar kemur að fjölda stjörnuveitingahúsa Meira
Turisti.is | 13.3. | 09:29
Nýfundið Da Vinci verk í Gautaborg
Málverkið "La Bella Principessa", sem nýlega var eignað Leonardo da Vinci, verður til sýnis í Eriksberghallen í Gautaborg næstu mánuði  Meira
Fleiri fréttir - Turisti.is

Besta veðrið næstu daga

mánudagur | þriðjudagur | miðvikudagur

  • Reykjavík

    ANA6 6°C

    Lítils háttar rigning
  • Kirkjubæjarkl.

    A3 6°C

    Rigning
  • Blönduós

    ANA9 3°C

    Alskýjað

Áfangastaðir

Gullfoss
Gullfoss
Einhver nafntogaðasti foss landsins fyrir ógnarmátt sinn og fegurð. Fossinn ... Meira

Við Geysi
Geysissvæðið
Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt ... Meira

Úr Bláa lóninu.
Bláa lónið
Bláa Lónið myndast af afrennsli orkuverinu í Svartsengi og er ... Meira

Fleiri áfangastaðir

Gagnlegir tenglar