RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Sandgerði.

Sandgerði. <a href=http://www.mats.is>www.mats.is</a>

Sandgerðisdagar að hefjast

Sandgerðisdagarnir verða haldnir hátíðlegir dagana 27. – 29. ágúst næstkomandi.  Í tilkynningu kemur fram Sandgerðisdagar eru fjölskylduhátíð bæjarbúa í Sandgerði og bjóði Sandgerðingar gesti velkomna í bæinn til að taka þátt í herlegheitunum með sér.  Litaglaðir bæjarbúar skreyta hús sín og götur en hverfum bæjarins hefur verið skipt upp eftir litunum gulur, rauður, grænn og blár.

Fram kemur að framkvæmdanefnd Sandgerðisdaga hafi unnið hörðum höndum við að gera hátíðina fjölskylduvæna og skemmtilega og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fjölmargir aðilar leggja hátíðinni lið, íbúar, félagasamtök, íþróttafélög og fyrirtæki. 

Dagksráin hefur nú birst í heild sinni á www.sandgerdisdagar.is og á www.245.is en verður dreift í hvert hús í Sandgerði eftir helgi.
Mánudaginn 24. ágúst verður karlakvöld í lauginni og þriðjudaginn 25. ágúst verður kósýkvöld hjá konum í lauginni.

Miðvikudaginn 26. ágúst verður skólasetning Grunnskólans í Sandgerði auk þess sem nýtt skólahúsnæði verður vígt.  Um kvöldið verður róleg kvöldstund í Safnaðarheimilinu með Lundi og hljómsveitinni Klassart úr Sandgerði. 

Á fimmtudagskvöldinu verður hin margumtalaða Lodduganga, Aftan festival hópurinn stendur fyrir tónleikum á Vitanum og uppistand á Mamma mía.

Formleg setning hátíðarinnar verður í Safnaðarheimilinu föstudagskvöldið 28. ágúst kl. 20.00 þar sem tónlistarfólk úr Sandgerði og fleiri flytja fagra tóna og önnur skemmtilegheit. 

Laugardaginn 29. ágúst verður mikið um að vera.  Meðal annars verður hverfakeppni í litbolta, markaðstjald, ýmsar uppákomur í Púlsinum, listasýningar, dorgveiðkeppni, Sandgerðistuddinn, Bjarni töframaður, Lísa í Idol, Björgvin Franz og Dofri dvergur, hæfileikarík börn úr Sandgerði leika og syngja, auk þess sem Skítamórall mætir á svið og tryllir lýðinn.  Götu- og hverfagrill eru fastur liður í hátíðinni fyrir kvöldskemmtunina og lýkur með hverfagöngu að hátíðarsviðinu.

Um kvöldið kom í heimsók félagarnir Gunni og Felix, kveikt verður í varðeldi og harmonikkufélagið leikur fyrir gesti.  Hápunktur kvöldsins verður þegar Hobbitarnir úr Sandgerði spila fyrir bryggjuballi þar til dagskrá lýkur á hátíðarsviði með sprengjum og eldingum að hætti björgunarsveitarinnar Sigurvonar úr Sandgerði. 

Eftir dagskrá á hátíðarsviði tekur við skemmtun á skemmtistöðum bæjarins, Mamma mía og Vitanum auk þess sem Skítamórall leikur fyrir dansi í Samkomuhúsinu. 

Á sunnudeginum er hægt að fara í hvala- og höfrungaskoðun með Eldingunni II, opið hús verður í Miðhúsum og nýr og betri Grunnskóli verður opinn fyrir gesti og gangandi.

Athugasemdir:
25. ágúst kl. 5:34

þvílíkt bull, það er ekkert sem er þess virði að skoða eða gera þarna og þetta er bara eftiröpun af fiskidegi Dalvíkinga.

Ragnar Eiriksson

Hótelleit

Ferðasögur

Myntbreyta

MyntFjárhæð
ISK - Íslensk króna  ISK
USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR
GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD
DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK
SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF
JPY - Japanskt jen  JPY
Í samvinnu við Kaupþing

Viðburðir

13. febrúar
Ragnheiður Gröndal

Mun stíga á stokk ...

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Höfn

    VNV2 2°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    NNA1 2°C

    Léttskýjað
  • Reykjavík

    S3 5°C

    Skýjað

Áfangastaðir

Gullfoss
Gullfoss
Einhver nafntogaðasti foss landsins fyrir ógnarmátt sinn og fegurð. Fossinn ... Meira

Við Geysi
Geysissvæðið
Geysissvæðið í Haukadal er eitt þekktasta hverasvæði jarðar, enda eitt ... Meira

Úr Bláa lóninu.
Bláa lónið
Bláa Lónið myndast af afrennsli orkuverinu í Svartsengi og er ... Meira

Fleiri áfangastaðir

Gagnlegir tenglar