Þóttist vera fótbrotinn til að fá betra sæti

Jamie Zhu þóttist vera ökklabrotinn til að fá betra sæti.
Jamie Zhu þóttist vera ökklabrotinn til að fá betra sæti. Samsett mynd

YouTube-stjarna í Ástralíu hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að þykjast vera ökklabrotin til að fá betra sæti um borð í flugvél. 

Jamie Zhu birti nýlega myndband á YouTube-rás sinni um hvernig best sé að fá sæti á fyrsta farrými ókeypis. Þar sýnir hann frá því hvernig hann plataði starfsmenn Cathay Pacific til að gefa honum sætið frítt.

Zhu keypti spelku í verslun á flugvellinum og setti spelkuna á ökklann áður en hann fór um borð. Um borð sýnir hann svo frá því að hann geti engan veginn komið sér þægilega fyrir í sínu venjulega flugsæti og biður um að vera færður. 

Það heppnaðist hjá honum og um leið og hann var kominn á fyrsta farrými tók hann af sér spelkuna og naut alls þess sem fyrsta farrými hefur upp á að bjóða.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert