Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 20.11.2002
| 11:13
| Uppfært
12:47
Hóta að hjúkra án fata
Hjúkrunarfræðingar, sem starfa við heimahjúkrun í Örebro í Svíþjóð, hóta að ganga naktir til vinnu sinnar fái þeir ekki styrk til kaupa á nýjum einkennisbúningi.
Fram kemur í blaðinu Nya ÖrebroKuriren, að um 30 starfsmenn heimahjúkrunar í borginni hafi farið í póstkortaherferð sem beinist gegn stjórn heimahjúkrunarinnar. Segir í póstkortunum að fáist ekki styrkur til að kaupa nýja búninga eigi hjúkrunarfræðingarnir einskis annars úrkosti en að ganga til vinnu sinnar naktir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








