Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| AFP
| 18.12.2002
| 18:00
Át yfir sig af sætindum
Tyrki nokkur lést í dag eftir að hafa borðað tvö kíló af sætindum sem hann veðjaði við vin sinn að hann gæti torgað.
Tyrkneska fréttastofan Anatolia skýrði frá því í dag að Necati Ceylan, sem var 45 ára gamall fimm barna faðir, hefði látist eftir að hafa legið í dái í þrjár vikur. Ceylan var lagður á sjúkrahús í nóvember eftir að hafa borðað tveggja kg þunga baklava-tertu, hefðbundinn eftirrétt í Mið-Austurlöndum sem er þakinn með sírópi. Ceylan vann veðmálið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









