O.J. Simpson vill fjalla um réttarhöldin yfir Robert Blake
O. J. Simpson
„Ég hef alls engin áform um að taka þátt í gerð raunveruleikasjónvarpsþátta, jafnvel þótt fólk hafi komið að máli við mig um slíkt," segir hann. „Ég er ekki í leit að verkefnum. Það eru engir umboðsmenn að leita að einhverju handa O.J." Þetta kemur fram á fréttavef CNN.
Simpson sagðist ekki hafa áhuga á að láta kvikmynda heimilislíf Simpson-fjölskyldunnar enda yrði það heldur leiðinlegt sjónvarpsefni til lengdar. Hann sagðist hins vegar hafa áhuga á að fjalla um réttarhöldin yfir Blake enda telji hann sig hafa góða innsýn í það mál. „Ég veit ekki hvort hann er sekur eða saklaus en ég veit að það er ekkert sem heitir að vera saklaus þar til maður hefur verið dæmdur sekur," segir hann.
Blake er sakaður um að hafa myrt eiginkonu sína, Bonny Lee Bakley, í Los Angeles árið 2001 en Simpson var sýknaður af opinberri ákæru um að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína, Nicole Brown Simpson, og vin hennar, Ronald Goldman, árið 1994. Hann var hins vegar fundinn sekur um að bera ábyrgð á dauða þeirra í einkamáli sem fjölskyldur Brown og Goldmans höfðuðu á hendur honum og dæmdur til hárra skaðabóta.
Hann hefur þó enn ekki greitt nema lítinn hluta bótanna og segist enga ástæðu hafa til að vinna þar sem hann geti átt von á því að allt það sem hann vinni sér inn verði tekið upp í skuldina.









