Roy Horn enn á sjúkrahúsi

Siegfried og Roy eru vinsælir í Las Vegas.

Siegfried og Roy eru vinsælir í Las Vegas. mbl.is

Þýski töframaðurinn Roy Horn, sem varð fyrir árás tígrisdýrs á Mirage-hótelinu í Las Vegas, er kominn á sjúkrahús í Los Angeles. Sjö ára gamalt tígrisdýr réðst að hálsi Horn og dró hann út af sviðinu þegar sýning átti sér stað á hótelinu hinn 3. október. Horn, sem er annar þýska tvíeykisins Siegfried og Roy, hafði skemmt gestum í Las Vegas í rúmlega 30 ár.

Bernie Yuman, umboðsmaður Siegfried og Roy, segir að Horn hafði sýnt mikinn viljastyrk og framfarir síðustu vikur. Siegfred Fischbacher, félagi Horn, hefur jafnframt gefið í skyn að tígrisdýrið hafi ætlað að hjálpa Horn, en aðrir hafa vísað þessum vangaveltum á bug.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is