Auglýst eftir konum til að prófa „Orgasmatron“

Bandarískir læknar hafa auglýst eftir sjálfboðaliðum úr hópi kvenna til að reyna tæki sem hlotið hefur nafnið „Orgasmatron“ en sé tækið grætt í konur á það að stuðla að auknum unaðssemdum ástarlífsins.

Greint er frá þessar uppfinningu í nýjasta hefti breska tímaritsins New Scientist sem lítur dagsins ljós á morgun. Skurðlæknir nokkur datt fyrir slysni niður á uppgötvunina fyrir rúmum tveimur árum þegar hann framkvæmdi venjulega aðgerð á konu þar sem markmiðið var að draga úr verkjum.

Aðgerðin felur í sér að grædd eru tvö rafskaut í hrygg konunnar og afar vægum rafstraumi hleypt á. Sjúklingarnir eru með meðvitund meðan á aðgerðinni stendur og geta því sagt til um hvenær dregur úr verkjum.

Í þessu tilviki fékk konan samstundis fullnægingu og það varð til þess að skurðlæknirinn Stuart Meloy ákvað að þróa hugmyndina frekar. Hann komst að því að meðferðin hentaði sérstaklega vel konum sem hafa átt við vanda að etja í samlífinu.

Hann áætlar að þegar tækið verði fullþróað muni það vera á stærð við gangráð. Tækið verður grætt undir húðina og unnt er að kveikja á því með fjarstýringu.

Undirtektir kvenna við þessu hafa þó verið dræmar og einungis ein kona hefur prófað tæki en önnur til viðbótar hefur gefið kost á sér. Nauðsynlegt er að átta konur til viðbótar gefi kost á sér til að prófa tækið. „Ég hélt að síminn hjá mér myndi ekki stoppa, það myndu svo margar konur vilja taka þátt í tilrauninni,“ segir Meloy í samtali við New Scientist. „En ég er í mestu vandræðum með að finna þátttakendur.“

Kynlífsráðgjafar hafa brugðist ókvæða við uppfinningu Meloys og segja kynkulda kvenna stafa af andlegum þáttum en ekki líkamlegum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Styttuþjófar herja á London

Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn.
Í gær, 18:05 Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins. Meira »

Tólf ára bjargaði ættaróðalinu

í fyrradag Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði. Meira »

Sektir fyrir að kasta svifdiskum

Hættulegur leikur? Maður leikur sér með svifdisk á ströndinn Venice Beach í Kaliforníu.
Í gær, 15:18 Sólardýrkendur geta nú átt á hættu að verða sektaðir fyrir að henda boltum og svifdiskum sín á milli á ströndum Los Angeles-sýslu í Kaliforníu. Sektin nemur 12 þúsund krónum. Meira »

Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu.
10.2. Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum. Meira »

finnur.is