Formúla fyrir réttri hælahæð

Hve háir eiga hælar á háhæluðum skóm eiginlega að vera? Hin virta vísindastofnun International Institute of Physics býður upp á stærðfræðilega formúlu að útreikningi á nákvæmlega réttri hælahæð, að því er greint er frá á fréttavef norska blaðsins Aftenposten.

Til grundvallar formúlunni er lögð skóstærðin, sem í útreikningnum er kölluð "s". Með því að setja þessa breytu í samhengi við mörkin á hættunni á að detta, reynslu af að ganga á háum hælum, og verðið, þá fæst út formúlan fyrir hinum fullkomnu skóm, að því er haft er eftir brezka eðlisfræðingnum Paul Stephenson.

Hættan á að detta, reynsla og innkaupsverð reiknast saman í breytuna Q, en nákvæmlega rétt hæð hælanna nefnist h. Formúlan hljóðar í heild þar með svona: h=Q(12+3s/8).

"Jafnvel þótt þetta kunni að virka flókið er þetta í rauninni sáraeinfalt," segir Stephenson. "Formúlan byggist á reglu Pýþagórasar um rétthyrnda þríhyrninginn, sem allir þekkja - eða ættu að þekkja - úr skólanum," bendir hann á. Stephenson hafnar öllum aðdróttunum um að hér sé aðeins fánýtt rugl á ferðinni. Formúlan geti einnig nýtzt t.d. konum sem vilji reikna út hve mikið áfengi þær þola að drekka án þess að missa jafnvægið á tilteknum háhæluðum skóm.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is