Barði kærustuna með krókódíl

Karlmaður á Flórída á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa notað krókódílinn sinn sem barefli í átökum við kærustuna.

Fram kemur á fréttavef BBC að maðurinn, sem er 41 árs, verði væntanlega ákærður fyrir líkamsárás og fyrir að hafa krókódíl á heimili sínu. Krókódíllinn er um metri að lengd.

Kærastan segir að maðurinn hafi barið hana. Þegar hún reyndi að flýja hafi hann gripið krókódílinn, sem var geymdur í baðkeri, og kastað honum á hana. Konan segir einnig að maðurinn hafi kastað í hana bjórflöskum.

Maðurinn sagði hins vegar að konan hefði bitið sig í höndina í reiðikasti yfir því að áfengisbirgðirnar á heimilinu voru þrotnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is