George Lucas viðurkennir að vera ekki sérlega lipur rithöfundur

George Lucas við tökur á öðrum hluta Star Wars bálksins, Árás klónanna.

George Lucas við tökur á öðrum hluta Star Wars bálksins, Árás klónanna. AP

George Lucas, höfundur Stjörnustríðsmyndanna, hefur viðurkennt að hann sé ekki besti rithöfundur í heimi. Hefur hann þakkað Francis Ford Coppola fyrir að hafa hjálpað sér að liðka pennann.

„Hann bjargaði mér þegar ég gat ekki skrifað staf í kvikmyndahandriti og nú er ég orðinn ókrýndur konungur hinna stirðu samtala,“ sagði Lucas er hann tók við viðurkenningu frá Bandarísku kvikmyndastofnuninni í Los Angeles í síðustu viku.

Frá þessu greinir fréttavefur kanadíska ríkisútvarpsins, CBC.

Tekjurnar af Stjörnustríðsmyndunum nema milljörðum dollara en gagnrýnendur hafa þó verið lítt hrifnir af því hvernig persónurnar í myndunum tala. Þannig sagði Roger Ebert í umfjöllun sinni um nýjustu myndina, Revenge of the Sith, að persónurnar í myndinni töluðu „undirstöðuensku“, litlausa og án allrar hnyttni.

Frægt varð þegar Harrison Ford sagði við tökur á fyrstu myndinni: „George, það er hægt að skrifa svona, en það er óhugsandi að nokkur segi svona.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is