Veröld/Fólk
|
Fræga fólkið - hægri dálkur
| Morgunblaðið
| 18.8.2005
| 5:30
| Uppfært
8:16
Sean Combs heitir núna bara Diddy
Diddy. AP
Rapparinn, sem áður kallaði sig Puff Daddy, ákvað að sleppa stafnum P úr gælunafninu því fólk vissi aldrei hvort það ætti að kalla hann P eða Diddy.
„Það vissi enginn hvað hann ætti að kalla mig. Ég tók eftir því að fólki leið illa með þetta þegar ég hitti það fyrst. Svo spurði það hvað það ætti að kalla mig. Jafnvel ég varð ringlaður, það tók mig langan tíma að útskýra hver ég væri," sagði Combs.
Diddy vonast til að nýja gælunafnið greiði fyrir samskiptum. „Þetta ætti að auðvelda hlutina. Eitt orð. Fimm stafir. Punktur."
Combs kemur fram í fyrsta sinn opinberlega sem Diddy þegar hann verður kynnir á MTV-tónlistarhátíðinni í Miami síðar í mánuðinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









