Hermt er að írska hljómsveitin U2 hyggist standa fyrir byggingu 35 hæða skýjakljúfs í heimaborg sinni Dublin. Meðlimir U2 eru sagðir hafa gengið til fundar við borgarstjórn Dublinar og kynnt fyrir henni hugmyndir um turn sem myndi m.a. hýsa hljóðver sveitarinnar á efstu hæðinni.
Samkvæmt heimildum er fyrirhugað að skýjakljúfurinn rísi í Britain Quay-borgarhluta Dublinar.
Á fréttavef Yahoo! er haft eftir írskum kaupsýslumanni að eftir að hafa talað við framkvæmdastjóra U2, Paul McGuiness, sé hann þess fullviss að af turnbyggingunni verði.
Á sama tíma og þessar fréttir berast eins og eldur í sinu heyrist einnig sá orðrómur að U2 sé með nokkra tónleika í deiglunni.