Fræga fólkið mætti ekki í teiti Kevin Federline

Hjónin Kevin Federline og Britney Spears.
Hjónin Kevin Federline og Britney Spears. AP

Rapparinn Kevin Federline, betur þekktur sem eiginmaður Britney Spears, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar enginn frægur mætti í teiti sem hann hélt að lokinni verðlaunahátíðinni Teen Choice Awards. Federline tróð upp á hátíðinni og þótti afar slakur. Er það talin orsök þess að enginn hinna frægu skemmtikrafta sem hann bauð mætti í teitina.

Má þar nefna söngkonuna Jessicu Simpson, leikkonuna Mischa Barton, leikarann Branton Routh og söngkonuna Nelly Furtado. Heimildarmaður dagblaðsins New York Daily segir fyrrgreindar einstaklinga ekki hafa viljað leggja það á sig að láta sem Federline hafi staðið sig vel.

Eiginkona Federline, Britney Spears, mætti þó í teitina, kasólétt af öðru barni þeirra. Mikið grín hefur verið gert að Federline í tónlistargeira Bandaríkjanna og segir ritstjóri XXL tónlistartímaritsins að betra væri að láta sem hann væri ekki til. ,,Hann er bara brandari. Ég held hann viti það bara ekki," segir ritstjórinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson