Magni sá eini sem ekki var um tíma í þremur neðstu sætunum

Ryan Star.
Ryan Star.

Herhvöt til stuðnings Magna Ásgeirssyni bar greinilega árangur því hann var sá eini af keppendunum sex í Rock Star Supernova sjónvarpsþáttunum, sem aldrei var í þremur neðstu sætunum meðan á atkvæðagreiðslu eftir þáttinn á þriðjudagskvöldið stóð. Magni er því meðal þeirra fimm, sem halda áfram þátttöku.

Það var Ryan Star, 28 ára söngvari frá Long Island í New York, sem var sendur heim í þættinum í kvöld en Dilana og Storm Large þurftu að syngja til að halda sætum sínum í þáttunum.

Fram kom að tvöfalt fleiri atkvæði voru greidd eftir þáttinn í gærkvöldi en mest hefur verið áður.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant