Neyddur til að „kvænast“ geit

Súdanskur maður hefur verið neyddur til að taka sér geit fyrir „eiginkonu“ eftir að hafa verið staðinn að samförum við hana.

Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC.

Eigandi geitarinnar segist hafa komið manninum að óvörum þar sem hann hafði með geitinni, spurt hvað hann væri að gera og þá hafi maðurinn dottið af dýrinu „og ég setti hann í bönd“.

Eigandinn fór með manninn fyrir öldungaráð og spurði hvað skyldi gera við hann. „Þeir sögðu að frekar en kæra hann til lögreglunnar skyldi ég láta hann greiða heimanmund fyrir geitina þar eð hann hafi farið með hana eins og eiginkonu,“ sagði geitareigandinn við blaðið Juba Post. „Það ég best veit er hann enn með geitinni.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is