Sykurmolarnir saman á ný

Sykurmolarnir á tónleikum árið 1987

Sykurmolarnir á tónleikum árið 1987 Sverrir

Í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því hljómsveitin Sykurmolarnir gáfu út smáskífu með laginu AMMÆLI ætlar hljómsveitin að koma saman aftur og spila á einum tónleikum í Laugardalshöll 17. nóvember næstkomandi.

AMMÆLI kom út 21. nóvember 1986 á Íslandi. Þegar það kom út í Bretlandi fór það beint á toppinn á óháða vinsældarlistanum.

Með því hófst ferill Sykurmolanna og plötuútgáfunnar Smekkleysu undir slagorðinu „heimsyfirráð eða dauði”. Fullskipuð kom hljómsveitin síðast fram á tónleikum 18. nóvember 1992.

FL Group mun styrkja tónleikana og Icelandair kemur einnig að tónleikunum, meðal annars með því að bjóða um allan heim sérstakar pakkaferðir til landsins af þessu tilefni. Slíkt hefur verið gert áður, meðal annars þegar Björk Guðmundsdóttir, annar forsöngvari Sykurmolanna, hefur haldið tónleika á Íslandi, að því er segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is