Mahir Cagri sakar Cohen um að stæla sig í hlutverki Borat
Sacha Baron Cohen í hlutverki Borat. Reuters
Cagri er Tyrki, býr í Bandaríkjunum og er hreint ótrúlega líkur Borat bæði í útliti og tali. Cagri sagði Wired News fréttavefnum að Cohen hefði aldrei fengið leyfi til þess að herma eftir honum. Cagri þessi er Íslendingum ekki alls ókunnugur því fyrir nokkrum árum gekk slóð á vefsíðu hans manna á milli og þótti þar margt skemmtilegt að finna. Vefsíðuna opnaði Cagri árið 1999.
Cagri fagnar þeim sem heimsækja síðuna með orðunum WELCOME TO MY HOME PAGE !!!!!!!!! I KISS YOU !!!!!, eða VELKOMIN Á HEIMASÍÐU MÍNA !!!!!!!! ÉG KYSSI ÞIG !!!!!. Þar segir einnig: ,,Hver er vill koma TYRKLAND ég get boðið ... Hún getur verið mínu heimili." Cagri segist vera blaðamaður að atvinnu, en Borat er fréttamaður. Þá má sjá ljósmyndir af Cagri í tennis og í sundi í níðþröngri, rauðri sundskýlu. Svipuð atriði má sjá í myndinni um Borat.
Cagri útilokar ekki að fara í mál við Cohen. ,,Ef mögulegt þú geta hjálpað mér til fyrir að stöðva þetta eða finna góðan lögfræðing? mun Cagri hafa spurt Wired News. Ástralska blaðið Sydney Morning Herald segir frá þessu.









