Angelina Jolie vill hvorki knús né grát

Angelina Jolie í New York 11. desember.

Angelina Jolie í New York 11. desember. Reuters

Angelina Jolie segir að það sé engum til bóta að fá knús, og grátur skili engum árangri. "Ég er ekki gefin fyrir faðmlög. Fólk gerir grín að mér fyrir þetta. Ég á erfitt með þetta,“ hefur Sky News eftir Angelinu, og veltir fréttaskrifari stöðvarinnar því fyrir sér hvernig þetta megi vera, í ljósi þess að unnusti hennar sé sjálfur Brad Pitt.

„Knús og kúr ... grátur ... mér finnst þetta allt mjög óþægilegt," segir Angelina ennfremur. „Ef einhver faðmar mig held ég niðri í mér andanum.“ Hún á þrjú börn, og vill eignast fleiri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is