Schwarzenegger fótbrotnaði á skíðum

Arnold Schwarzenegger með skíði, myndin var tekin 1998.
Arnold Schwarzenegger með skíði, myndin var tekin 1998. ROSE PROUSER

Fylkisstjóri Kaliforníu, Arnold Schwarzenegger jafnar sig nú eftir aðgerð á fæti. Kvikmyndastjarnan og stjórnmálamaðurinn frægi lærbeinsbrotnaði við skíðaslys á fimmtudaginn. Schwarzenegger sem er 59 ára var á skíðum í Sun Walley í Idaho.

Læknar skáru hann upp og settu skrúfur og víra í kappann til að lærleggurinn grói rétt saman.

Schwarzenegger sagðist nota tímann á sjúkrahúsinu til að semja ræðu til að flytja við vígsluathöfn í næsta mánuði er hann verður settur í embætti fylkisstjóra í annað sinn.

Þetta er í þriðja sinn á árinu sem hann hefur þurft á læknisaðstoð að halda. Í janúar voru saumuð 15 spor í vörina á honum eftir mótorhjólaslys og í desember var hann í rannsóknum vegna hjartatruflana sem komu í kjölfar magapestar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant