Mínus á mbl.is
Ný breiðskífa með Mínus er væntanleg um miðjan apríl.
Platan hefur fengið heitið The Great Northern Whalekill og hefur verið í smíðum hjá sveitinni frá því í ágúst á síðasta ári. Hún verður fjórða breiðskífa Mínus, en þrjú ár eru liðin frá því platan Halldór Laxness kom út.
Undirbúningur plötunnar hófst í ágúst á síðasta ári í bílskúrskjallara í Hlíðunum þar sem Mínusmenn sömdu lög af kappi. Lögin voru svo prufukeyrð á tónleikum eftir því sem þau urðu til, nú síðast í Laugardalshöllinni þegar Mínus hitaði upp fyrir bandarísku sveitina Incubus, en þá fengu sex þeirra að hljóma.
Platan var síðan tekin upp á tveim vikum í The Sound Factory hljóðverinu í Los Angeles, en Joe Barresi, sem meðal annars hefur unnið með Kyuss, Melvins og Queens of the Stone Age, stýrði upptökum, og við takkana sat S. Husky Höskulds sem einnig sá um hljóðblöndun.
Næstu tónleikar Mínus verða útgáfudaginn, mánudaginn 16. apríl, en þá hyggjast Mínusmenn leika á tónleikum fyrir alla aldurshópa til að fagna útgáfunni.
Krummi í Mínus segir að lagið Futurist fjalli um tíma sem eflaust muni koma, „en við skulum vona að það sé fjarlægur tími enda segir það frá brengluðum framtíðarmanneskjum, hálfgerðum klónum sem hugsa of mikið".
Hægt er að sækja Futurist með því að fara á mbl.is/folk og skrá sig á póstlista Mínus, en lagið verður aðeins aðgengilegt einn dag. Þeir sem skrá sig á póstlistann komast í verðlaunapott og eiga kost á að vinna eintak af The Great Northern Whalekill, en tíu heppnir verða dregnir úr netföngunum á listanum.









