Stálu gullstöng af sýningu

Bíræfnir þjófar stálu gullstöng, sem var til sýnis á safni í Japan. Stöngin, sem vó um 100 kíló, er metin á jafnvirði 125 milljóna króna.

Safnið, sem er í borginni Takayama, sagði að gullstöngin hefði ekki verið varin með skynjurum vegna þess að ætlast var til þess að sýningargestir gætu snert hana.

En þjófarnir tóku þetta tilboð einum of bókstaflega. Þrír þeirra burðuðust með gullstöngina gegnum sýningarsalinn, niður stiga og út úr húsinu þar sem félagi þeirra beið í bíl. Síðan óku þeir á brott og hefur ekki til þeirra spurst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Lét níu ára dóttur sína keyra

15:52 Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
21.2. Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

finnur.is