Viktoría vonar að Rómeó verði góður brimari

Viktoría mætir á MTV-verðlaunahátíðina í Los Angeles fyrir skömmu.

Viktoría mætir á MTV-verðlaunahátíðina í Los Angeles fyrir skömmu. Reuters

Viktoría Beckham segist vona að sonur sinn Rómeó nái mikilli leikni á brimbrettum. Rómeó er fjögurra ára, en fjölskyldan flyst til Los Angeles í sumar þegar Davíð Beckham gengur til liðs við knattspyrnuliðið Galaxy þar í borg. Viktoría segir að öll fjölskyldan hlakki til að flytja, ekki síst synina þrjá. „Ég sé Rómeó alveg fyrir mér sem brimara,“ sagði Viktoría í viðtali við tímaritið Glamour.

Viktoría og Davíð eiga tvo aðra syni, Broolyn, sem er átta ára, og Cruz, sem er tveggja ára. Hún segist ennfremur hlakka mjög til að verða nágranni vina sinna, Katie Holmes og Tom Cruise. Viktoría segist kunna einkar vel við Katie, og þær ræði mikið um tísku og börnin sín.

Um sögusagnir um erfiðleika í hjónabandi Katie og Tom sagði Viktoría: „Fólk vill einfaldlega ekki trúa því að þau séu gott fólk og að þau séu hamingjusöm saman. Rétt eins og fólk vill ekki trúa því um mig og Davíð.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Fræga fólkið - hægri dálkur — Fleiri fréttir

Phelps snýr aftur til Peking myndskeið

Phelps kemur til Peking á ný
13.1.2009 Sundkappinn Michael Phelps sem vann til átta gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking í sumar sneri aftur til borgarinnar nýverið. Í þetta skiptið var það ekki til að keppa þó svo hann hafi eytt mestum tíma í sundlauginni. Meira »

Fergie og Duhamel gefin saman

Fergie söng með hljómsveitinni Black Eyed Peas.
11.1.2009 Tónlistarkonan Fergie og leikarinn Josh Duhamel voru gefin saman í Malibu í Kaliforníu í gærdag. Athöfnin þótti ævintýraleg en hún fór fram undir magnólíutrjám sem skreytt voru þúsundum hvítra rósa. Meira »

Sækir um skilnað frá Winehouse

Amy Winehouse
12.1.2009 Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hefur sótt um skilnað. Ástæðan er framhjáhald söngkonunnar óstýrilátu. Fielder-Civil og Winehouse gengu í hjónaband árið 2007. Hjónabandið hefur verið stormasamt og Fielder-Civil varði miklum hluta síðasta árs í fangelsi. Meira »

Sopranos-leikari dæmdur í fangelsi

Lillo Brancato
11.1.2009 Leikarinn Lillo Brancato sem er m.a. þekktur fyrir leik sinn í Sopranos-þáttunum var á föstudag dæmdur til 10 ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að innbroti inn í íbúð í New York þar sem Brancato og félagi hans ætluðu að stela lyfjum. Lögreglumaður sem reyndi að stöðva innbrotið var skotinn til bana af félaga Brancato. Meira »

finnur.is