Benzinn hennar Parísar gerður upptækur

Þessa mynd tók lögreglan í Los Angeles af Parísi er …
Þessa mynd tók lögreglan í Los Angeles af Parísi er hún var handtekin 7. september í fyrra. AP

Bíllinn hennar Parísar Hilton hefur verið gerður upptækur vegna þess að hún stóð ekki í skilum með tvær síðustu greiðslurnar af honum. Um er að ræða Mercedes Benz sem kostar sem svarar ríflega 31 milljón króna.

Ástralska tímaritið New Weekly hefur eftir starfsmanni bílageymslunnar sem hýsir bílinn að starfsfólki þar hafi verið mjög brugðið er það gerði sér grein fyrir hver eigandi bílsins var.

„Hún hlýtur að hafa verið svo annars hugar út af öllu sem gengur á að hún gleymdi að borga reikningana.“

Þá herma og fregnir að París hafi fengið tilboð um að sitja fyrir á myndum fyrir Playboy.

En móðir hennar, Kathy, segir það ekki koma til mála.

Hugh Hefner, útgefandi Playboy, segir að tilboðið standi áfram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler