Aniston segir Sculfor betri í bólinu en Pitt

Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. Reuters

Leikkonan Jennifer Aniston á að hafa sagt frá því að nýi maðurinn í hennar lífi, Paul Sculfor, sé betri í bólinu en fyrrum eiginmaður hennar Brad Pitt.

Heimildamaður, sem á að vera mjög nákominn Aniston, segir í viðtali við breska Star tímaritið að Aniston sé sannfærð um að Sculfor sé rétti maðurinn fyrir hana. Hann sé jafnvel betri í rúminu heldur en Pitt og fyrrum elskhugi, Vince Vaughn.

Samkvæmt Star hefur Aniston reynt að krydda sambandið við Sculfor með því að kaupa æsandi nærföt frá versluninni Love Boutique í Santa Monica.

Segir heimildamaðurinn að hún hafi eytt tæplega 400 pundum í sokkabönd, nærföt og sokka. Hún hafi verslað þetta á netinu og sent aðstoðarmann sinn til þess að sækja vörurnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant