Landaði 8 punda bleikju á blankskónum

Gunnar Kristjánsson, sonur Kristjáns Þórs alþingismanns, með fiskinn væna.

Gunnar Kristjánsson, sonur Kristjáns Þórs alþingismanns, með fiskinn væna.

Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, krækti í 8 punda bleikju á þriðja svæði í Eyjafjarðará í kvöld. Hann átti ekki annarra kosta völ en að fela syni sínum að landa fiskinum.

Kristján fékk að taka nokkur köst þegar hann heimsótti son sinn og vini við veiði í Eyjarfjarðará. Hann var því hér um bil á blankskónum, að því er kemur fram á veiðivefnum flugur.is.

„Heljarmikil kusa tók Pheasant Tail og straujaði út svo kvein í hjólinu, hún fór með allt niður á undirlínu,“ segir á vefnum. Sonur Kristjáns, varð að koma til bjargar þar sem skóbúnaður alþingismannsins var ekki ætlaður til stórræðanna í veiðiskap og tókst honum að landa fiskinum eftir um 20 mínútna baráttu.

Fiskurinn var nákvæmlega 4 kíló og 68 sm, gullfallegur sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Ekki er vitað til þess að stærri fiskur hafi komið úr ánni í sumar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is